Framsóknarmenn vilja lögsækja breska ríkið 18. september 2011 14:07 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er í forsvari fyrir Framsóknarmenn sem vilja undirbúa lögsókn á hendur breska ríkinu.
Framsóknarflokkurinn hyggst leggja fram þingsályktunartillögu þess efnis að mál verði höfðað á hendur breskar ríkinu vegna beitingar hryðjuverkalaganna. Framsóknarmenn lögðu tillöguna fram á síðasta þingi, en þá hlaut hún ekki afgreiðslu. Tillagan felur í sér að höfðað verði mál á hendur breska ríkisins fyrir alþjóðlegum dómstól. Forsætisráðherra undirbúi málið. Einnig verði gerð krafa um skaðabætur fyrir það tjón sem hryðjuverkalögin ollu á Íslandi. Í gær lagði fjármálaráðuneytið fram skýrslu sem tekin var saman um tjón það sem lögin ollu á Íslandi. Niðurstaða skýrslunnar er að beint tjón hlaupi á tveimur til níu milljörðum króna. Ómögulegt sé hins vegar að meta tjónið sem hlýst af löskuðu orðspori landsins. Þess skal þó getið að höfundar skýrslunnar gera mikla fyrirvara við niðurstöður hennar, enda erfitt að meta tjónið með óyggjandi hætti. Vegna þessa telja framsóknarmenn sýnt að fullt tilefni sé til umræddrar málshöfðunar. Þeir munu því leggja tillöguna fram á næsta þingi, en það hefst 1. október. Fram kom í fréttum RÚV í hádeginu í dag að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, vilji athuga hvort mögulegt sé að sækja bætur vegna beitingu laganna. Því getur verið að Bjarni snúist á sveif með framsóknarmönnum og styðji tillögu þeirra.
Mest lesið Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum Innlent Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Innlent Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Innlent „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ Innlent „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Innlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent Fleiri fréttir Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Tæpur fjórðungur umræðutímans fór í veiðigjöld Sjá meira