Ólafur: Veigar braut agareglur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. september 2011 18:23 Veigar Páll Gunnarsson á æfingu íslenska landsliðsins. Mynd/Anton
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur staðfest að Veigar Páll Gunnarsson braut agareglur fyrir leik liðsins gegn Kýpur í gær. Veigar Páll var tekinn úr hópnum á laugardaginn, sama dag og landsliðið kom heim frá Noregi. „Við settum ákveðnar reglur þegar við komum hingað til lands frá Noregi. Hann fór ekki eftir þeim reglum," sagði Ólafur í kvöldfréttum útvarps á Rúv. „Í kjölfarið fór af hann hótelinu á miðnætti." „Ég leyfði mönnum að fara heim og heimsækja vini og vandamenn. Reglurnar voru að þeir áttu að skila sér aftur upp á hótel klukkan tólf og var öll áfengisneysla bönnuð," útskýrði Ólafur. „Hann kom á hótelið fyrir tólf," sagði hann og má því skilja á orðum hans að Veigar hafi þá brotið hina regluna og neytt áfengis. Ólafur sagði sjálfur á æfingu landsliðsins á mánudaginn að um ágreining á milli hans og Veigars hafi verið að ræða. Hann vildi ekki útskýra nánar í hverju sá ágreiningur var falinn. Eftir leikinn gegn Kýpverjum í gær spurði Vísir Ólaf um ástæður þess að Veigar var ekki í landsliðshópnum en neitaði hann þá aftur um að tjá sig um málið. Ekki hefur náðst í Veigar vegna málsins þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Íslenski boltinn Mest lesið Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Körfubolti Barði sig til blóðs eftir tap á HM Sport Jafnt í ótrúlegum átta marka leik á Old Trafford Enski boltinn Mætti til leiks berfættur og ber að ofan í snjókomunni Sport „Í dag er dagurinn sem þú fæddist, í dag er dagurinn sem þú munt deyja“ Enski boltinn Uppgjörið: Haukar - Fram 25-27 | Meistararnir unnu toppliðið í naglbít Handbolti „Auðvitað var þetta sjokk“ Körfubolti Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron Körfubolti Þórir í skýjunum: „Sit með lítið tár í augnkróknum“ Handbolti „Sé ekkert annað en að dýrasti leikmaður deildarinnar verði áfram á bekknum“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Sjá meira