Hvetja Árna Johnsen að styðja Priyönku SB skrifar 2. febrúar 2011 13:10 Priyanka Thapa óttast að verða send aftur til Nepal þar sem hennar bíði í raun þrældómur. Mynd/Valgarður
Au Pair fjölskylda Priyönku Thapa, nepalskrar stúlku sem barist hefur fyrir því að verða ekki send úr landi, undrast það að útlendingum, sem engan áhuga hafa á Íslandi, sé boðinn ríkisborgararéttur en Priyönku ekki. Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lagði á dögunum fram frumvarp um að veita hinni rússneskættuðu Madinu Salamova ríkisborgararétt hér á landi. Madina hefur verið ólöglegur innflytjandi í Noregi frá unga aldri og ákváðu norsk stjórnvöld á dögunum að vísa henni úr landi. Lögmaður Madinu hefur lýst því yfir að hún kæri sig ekki um að vera íslenskur ríkisborgari. Önnur stúlka, sem býr hér á landi, Priyanka Thapa á þann draum sér heitastan að fá að búa á Íslandi. Hún kom hingað til lands sem Au Pair hjá fjölskyldu Þórólfs Gunnarsson, framkvæmdastjóra í Vogunum. Í hjartnæmu viðtali í Fréttablaðinu lýsti hún því að henni biði þröngvað hjónaband snúi hún aftur til Nepal. „Lífi mínu er hreinlega lokið ef ég fer aftur heim. Þar bíða mín gamlir karlar og ömurlegar aðstæður - í raun bara þrældómur," sagði hún en Priyanka tilheyrir lágstétt í Nepal og eina leið fjölskyldu hennar til að komast af er að brúðgumi greiði lífsviðurværi hennar. Hér á Íslandi stundar Pryanka hins vegar nám við Keili og unir hag sínum vel. Í samtali við Vísi segir Þórólfur að hann hafi orðið afar undrandi þegar hann hefði lesið fréttir af baráttu Árna Johnsen. „Vissulega vakti þetta furðu hjá manni þegar maður las um þetta mál. Eftir að greinin birtist í Fréttablaðinu um aðstæður Priyönku hef ég orðið var við mikinn stuðning við hennar málsstað í samfélaginu," segir Þórólfur og segir kannski ráð að Árni Johnsen kynni sér málið líka. Priyanka fékk vistráðningu hjá íslenskum yfirvöldum þegar hún kom til landsins. Það leyfi gildir í eitt ár og er runnið út. Hún hefur sótt um dvalarleyfi hér á landi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Umsóknin var lögð inn í Útlendingastofnun í nóvember en Priyanka hefur ekki fengið svar. Þórólfur Gunnarsson segir næstu skref þau að sækja um íslenskan ríkisborgarrétt fyrir Priyönku. „Það er rétta ferlið og það sem hún vill. Hún hefur áhuga á að vera hér á landinu, hún býr hjá okkur og lærir hér á Íslandi og við vonum að þing og allsherjarnefnd taki jákvætt í mál hennar."
Tengdar fréttir Vill ekki verða þræll í Nepal Lífi mínu er hreinlega lokið ef ég fer aftur heim. Þar bíða mín gamlir karlar og ömurlegar aðstæður – í raun bara þrældómur,“ segir Priyanka Thapa, 22 ára gamall Nepalbúi sem búið hefur á Íslandi síðastliðið ár. 24. desember 2010 07:00 Mest lesið Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Fleiri fréttir Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Sjá meira
Vill ekki verða þræll í Nepal Lífi mínu er hreinlega lokið ef ég fer aftur heim. Þar bíða mín gamlir karlar og ömurlegar aðstæður – í raun bara þrældómur,“ segir Priyanka Thapa, 22 ára gamall Nepalbúi sem búið hefur á Íslandi síðastliðið ár. 24. desember 2010 07:00