Rannsaka aðbúnað fatlaðra 10. desember 2011 08:30 Jóhanna Sigurðardóttir er forsætisráðherra.
Ríkisstjórnin samþykkti í gær tillögu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra um að rannsaka aðbúnað fatlaðra barna sem vistuð hafa verið á vegum hins opinbera. Kannað verður hvort börnin hafi búið við ofbeldi eða sætt illri meðferð meðan á vistun á stofnunum stóð. Jóhanna segir að beiðni hafi legið fyrir frá Þroskahjálp um slíka rannsókn. Aðbúnaður þeirra sem voru í Heyrnleysingjaskólanum hefur verið kannaður, en ekki hefur farið fram almenn rannsókn varðandi fötluð börn í opinberri vist. „Þeirra aðstæður verða skoðaðar með sambærilegum hætti og barna sem vistuð voru á öðrum stofnunum. Kannað verður hvort þau hafi orðið fyrir ofbeldi meðan á vistuninni stóð,“ segir Jóhanna. Hún segir rannsóknina falla undir lög um sanngirnisbætur ef í ljós komi að fötluð börn hafi sætt ofbeldi eða illri meðferð, en það sé sýslumanns, samkvæmt þeim lögum, að meta um rétt til bóta. Það fellur undir sama hatt og með aðrar sanngirnisbætur. Áfangaskýrsla vistheimilisnefndar var rædd í ríkisstjórn í gær, en niðurstöður hennar voru kunnar í vikunni. Ályktað var að á nokkrum velferðarheimilum sem heyrðu undir Upptökuheimili ríkisins og Unglingaheimili ríkisins hefði verið um illa meðferð og ofbeldi á börnum að ræða en öðrum ekki. Jóhanna segir að velferðarráðherra hafi verið falið að taka sérstaklega til umfjöllunar sveitaheimili undir opinberu eftirliti, sumardvalaheimili, umönnunarheimili og fósturheimili.- kóp
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Innlent Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Innlent Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri Innlent Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Innlent Fleiri fréttir Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sjá meira
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent