Ólíkar áherslur um breytta ríkisstjórn 10. desember 2011 03:30 Aðildarumsóknin að Evrópusambandinu er ekki síst það sem valdið hefur titringi á meðal stjórnarflokkanna. Samfylkingin leggur áherslu á að fá atvinnuvegaráðuneyti, verði það stofnað, þar sem flokksmönnum þykir Jón Bjarnason hafa dregið lappirnar varðandi umsóknina. fréttablaðið/gva
jóhanna sigurðardóttir Hvaða áform eru uppi um breytingar á ríkisstjórn? Óhætt er að segja að titringur hafi komið upp á stjórnarheimilinu þegar tillögur starfshóps um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu birtust á vef sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins. Ríkisstjórnin hafði skipað ráðherranefnd til að fara með málið, sem var áður á forræði fagráðherrans Jóns Bjarnasonar. Þetta gerðist fyrir nákvæmlega tveimur vikum, laugardaginn 26. nóvember. Tveimur dögum síðar funduðu þingflokkar stjórnarflokkanna og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins kom rík krafa um brotthvarf Jóns fram á fundi Vinstri grænna. Ekkert hefur verið látið uppi um hvaða áform eru um breytingar á ráðherraliðinu. Fyrir vikið hafa ýmsar kenningar farið á flot, mjög misáreiðanlegar. Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa verið duglegir við að þýfga ráðherra um stuðning við Jón Bjarnason og oddvita stjórnarflokkanna um hvaða breytingar eru fyrirhugaðar. Lítið hefur hins vegar verið um svör, sem er kannski ekki nema von. Ekki er venjan að tilkynna fyrirfram um breytingar á ríkisstjórnum. Steingrímur og Jóhanna halda spilunum þétt upp að sér og ólíklegt er að nokkuð verði tilkynnt fyrr en rétt áður en breytingar skella á. Ljóst er hins vegar að meiningarmunur er á milli oddvitanna um hvaða leiðir á að fara. Ein hugmynd sem rædd hefur verið er að leggja efnahags- og viðskiptaráðuneytið niður og koma verkefnunum fyrir í öðrum ráðuneytum. Með því færðust öll efnahagsmál á hendur fjármálaráðuneytisins. Steingrímur gaf því undir fótinn á dögunum í umræðum á Alþingi, en Jóhanna sagði slíkt ekki í takti við stjórnarsáttmálann og engin málefnaleg rök væru fyrir breytingunni. Meiningarmunurinn er því ljós á milli oddvitanna. Heimildir Fréttablaðsins herma að einmitt þarna liggi hundurinn grafinn. Vinstri græn vilji ekki gera þá einföldu breytingu að Jón Bjarnason fari úr ríkisstjórn. Frekari breytingar þurfi. Það rímar ágætlega við hugmyndir Samfylkingarinnar og stjórnarsáttmálann. Þar er talað um fækkun ráðuneyta í níu og stofnun umhverfis- og auðlindaráðuneytis og atvinnuvegaráðuneytis. Hvort stjórnin hafi styrk í slíkar breytingar núna er stóra spurningin. Verði atvinnuvegaráðuneyti stofnað þykir Vinstri grænum hallað á sig hvað valdajafnvægi varðar. Þau yrðu þá með færri ráðherra og jafnvel gæti komið upp sú staða að þau krefðust embættis forseta Alþingis. Hefð er fyrir því að það sé skjól fyrir brotthorfna ráðherra, þannig að eins víst er að Jón Bjarnason gæti gert tilkall til þess. Allsendis óvíst er hvort það dugir til. Fái Samfylkingin atvinnuvegaráðuneyti þykir halla á samstarfsflokkinn í málefnavægi. Það mundi nást verði efnahags- og viðskiptaráðuneytið lagt niður. Formanna flokkanna bíður að leysa úr þessum ráðherrakapli þannig að hann gangi upp. Óvíst er hvenær það verður, en allt bendir til að það gerist á þessu ári. kolbeinn@frettabladid.issteingrímur j. sigfússon
Mest lesið Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Innlent „Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“ Innlent Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir Innlent Kerfið er vandamálið ef það styður ekki nýsköpun Innlent Íranir mótmæla á ný Erlent Metfjöldi gesta tvo daga í röð Innlent Haraldur Sigurðsson – Halli – er látinn Innlent Deilt um opnunartímann: „Sonur minn var hundfúll út í mig“ Innlent Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Innlent Spyr hvernig fólk muni ná endum saman Innlent Fleiri fréttir Kerfið er vandamálið ef það styður ekki nýsköpun Metfjöldi gesta tvo daga í röð Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir „Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“ Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Heitur matur í boði á ný Deilt um opnunartímann: „Sonur minn var hundfúll út í mig“ Sinueldur barst í heyrúllur í Hvalfirði Framboðslistinn tilbúinn í Fjarðabyggð Tryggingar lækki verulega verði ráðist í nauðsynlegar úrbætur Átta konur eru í slökkviliðum í Árnessýslu Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Lögreglan lokaði fyrir umferð í Hlíðarfjall Fjölgaði í flokknum vikurnar fyrir forvalið Skipti um akrein í tæka tíð þegar bíll ók á móti umferð Kjósa um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps Gagnrýnir að ekki séu settar strangari kröfur á verktaka Handtekinn fyrir að bakka ítrekað á hús Haraldur Sigurðsson – Halli – er látinn Spyr hvernig fólk muni ná endum saman Verkalýðsleiðtogar hjóla í Viðskiptaráð Einn leikskóli inn, annar út og starfsemin á flakki milli húsa „Ég held ég hafi migið í saltan sjó“ Skellur fyrir Trump „Helvítið“ breyttist í geggjaðan Austurríkisfíling Gaf spellvirkjunum bakkelsi eftir að lit var skvett á heimilið Setið um fjölskyldur félagsráðgjafa og börn þeirra áreitt Dæmd fyrir að slasa farþega þegar hún sofnaði undir stýri rútu Leita vitna að atviki í Bolungarvíkurgöngum Rannsaka tilefnislausa líkamsárás í miðbænum Sjá meira