Fróaði sér fyrir framan stúlknahóp 22. desember 2011 07:15 Héraðsdómi Reykjavíkur þótti framburður mannsins ótrúverðugur.
Hálfsextugur maður hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að fróa sér fyrir framan hóp stúlkna á 14. og 15. aldursári í Elliðaárdal. Fimmtudaginn 15. júlí 2010, barst lögreglu tilkynning um að karlmaður væri að fróa sér fyrir framan hóp stúlkna í Elliðaárdal. Er lögreglumenn komu á vettvang sáu þeir mann, sem svaraði til lýsingar þess er hringdi í lögreglu, sitjandi á bekk á svæðinu. Lögreglumenn ræddu við þrjú ungmenni, sem sátu á grasbala við fossinn, sem sögðust hafa orðið vör við að eldri karlmaður, sem lá í grasinu skammt frá þeim, hefði farið með hendur undir buxur sínar og farið að fróa sér, en gengið svo á brott. Bentu þau öll á ákærða, þar sem hann sat á bekknum, og sögðu hann vera manninn sem þetta gerði. Þrjár stúlkur til viðbótar höfðu séð þetta til mannsins. Maðurinn kvaðst við yfirheyrslur hafa verið að nudda á sér fæturna þar sem hann væri með fótaóeirð. Þá kvaðst hann líka þjást af ristilkrampa og hefði hann verið frekar slæmur þennan dag. Hann hefði því farið með hönd undir bol sem hann var í og hnoðað eða hrist magann til að mýkja ristilinn. Þetta þótti dóminum harla ósennilegt.- jss
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira