Erlent

Le Pen yrði efst í fyrstu umferð

Marine Le Pen
Marine Le Pen
Marine Le Pen, leiðtogi Þjóðfylkingarinnar í Frakklandi, gæti sigrað í fyrstu umferð frönsku forsetakosninganna á næsta ári ef marka má skoðanakönnun dagblaðsins Le Parisien sem birt var í gær.

Niðurstaða könnunarinnar hefur valdið nokkru fjaðrafoki þar í landi, en samkvæmt henni fengi Le Pen 23 prósent atkvæða, tveimur prósentum fleiri en forsetinn Nicolas Sarkozy og Matrine Aubry, leiðtogi sósíalista.

Þjóðfylkingin er hægri sinnaður flokkur sem hefur barist gegn innflytjendum. Le Pen sagðist þó nýlega vilja brjóta niður ímynd flokksins um útlendingahatur. - kg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×