Grikkland enn á ný í brennidepli hjá ESB 25. júní 2011 05:30 Vel fór á með leiðtogunum þrátt fyrir alvarlegan undirtón umræðnanna. Mynd/AP
Leiðtogaráðstefnu Evrópusambandsins lauk í gær eftir tveggja daga fundarhöld. Enn einu sinni skyggðu fjárhagsvandræði Grikklands á önnur umræðuefni en ræddar voru leiðir til að koma ríkinu til hjálpar og verja evruna. Niðurstaða leiðtoganna var að veita Grikkjum aðgang að milljörðum evra úr þróunarsjóðum sambandsins. Vonast þeir til þess að aðstoðin auðveldi grísku ríkisstjórninni glímuna við fjármálakreppuna og geri henni kleift að koma óvinsælum aðhaldsaðgerðum í gegnum þingið. Þróunarsjóðir ESB eru ætlaðir til að styrkja innviði vanþróaðri ríkja sambandsins. Grikkir eiga heimtingu á fimmtán milljörðum evra á næstum tveimur árum en hafa átt í erfiðleikum með að finna verkefni sem uppfylla skilyrði til veitinga úr sjóðnum. Á þeim skilyrðum verður nú slakað en ólíkt þeim neyðar-lánum sem gríska ríkið hefur fengið þarf ekki að borga styrkina til baka. Gríska skuldakreppan hefur náð nýju hámarki á undanförnum vikum. Þrátt fyrir stór neyðar-lán frá ríkjum evrusvæðisins og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum er ljóst að enn skortir ríkið tugi milljarða evra til að eiga fyrir skuldum. Á fundinum var einnig gengið frá ráðningu ítalska hagfræðingsins Mario Draghi í embætti bankastjóra Evrópska seðlabankans. Þá var staðfest að Króatíu mun standa til boða að ganga í sambandið 1. júlí 2013 og verða 28. ríki sambandsins. Þá var samþykkt að þróa sameiginlegar reglur um landamæraeftirlit innan sambandsins. Lýstu margir leiðtoganna yfir áhyggjum af því að verið væri að ganga gegn meginreglunni um frjálsa för innan sambandsins, en einungis skal grípa til virks landamæraeftirlits þegar önnur ráð hefur þrotið. magnusl@frettabladid.is
Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Erlent Fleiri fréttir Ted Turner er látinn Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Telja sig hafa fundið lofthjúp utan um örreikistjörnu handan við Plútó Íslendingar mótmæla við skála Rússa á Feneyjatvíæringnum Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanaríeyja Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Engin ríkisstjórn enn og stefnir í met Stefna á að hýða eineltisseggi í Singapúr Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Sjá meira