Erlent

Berjast við skógarelda í Arizona

Reykurinn er mikill eins og sést á myndinni.
Reykurinn er mikill eins og sést á myndinni. Mynd / AP
Slökkviliðsmenn í Tucson, Arizona í Bandaríkjunum kljást við illvíga skógarelda sem hafa logað í sex daga en samkvæmt fréttastofu AP er þetta þriðji stærsti skógareldurinn sem hefur orðið í fylkinu.

Minnsta kosti þúsund manns hafa þurft að flýja heimili sín. Slökkviliðsmenn hafa ekki náð tökum á eldunum sem nálgast Nýju-Mexíkó.

Þrettán hundruð slökkviliðsmenn standa vaktina en þeir eru langt frá því að ná tökum á eldinum samkvæmt AP fréttastofunni. Talsmaður slökkviliðsins sagði verkefnið ákaflega erfitt og í raun væri tilfinning slökkviliðsmanna sú að þeir væru að berjast við eldinn með eldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×