Kötturinn Keli baðar sig loksins í sviðsljósinu 19. ágúst 2011 09:00 Kötturinn Keli hefur lengi þráð sviðsljósið en því var einatt beint að eiganda hans. En nú er hans tími kominn eftir 23 ár. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Svo virðist sem Fréttablaðið hafi farið á mis við sjálfan aldursforsetann í leit sinni að elsta ketti landsins því kötturinn Keli varð 23 ára í júlí og er því ári eldri en Öskubuska sem fjallað var um í gær. Keli er víst afar athyglissjúkur og hefur lengi þráð að komast í fjölmiðla en þeirri athygli hefur verið mjög misskipt á heimilinu því eigandi hans er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar. En nú virðist hans tími kominn. „Þegar fjölmiðlamenn komu hingað var hann ekki lengi að taka við sér og sótti mjög í myndavélarnar þannig að það er kominn tími til þess að hann fái líka sína 15 mínútna frægð eins og nú er svo mikið í tísku,“ segir Ingibjörg Sólrún. Hún fékk Kela þegar hann var aðeins mánaðargamall og því verður mikill sjónarsviptir af honum en óneitanlega nálgast hans hinsta stund. „Já, hann er orðinn lúinn, heyrir illa og er gigtveikur og kominn með elliglöp; stundum man hann ekki hvort hann er búinn að borða. En hann fer alltaf út og labbar aðeins um.“ Keli kemst ekki frá því að verða settur í pólitískt samhengi en hann fæddist í stjórnartíð ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar og hefur lifað af ellefu ríkisstjórnir. Geri aðrir kettir betur.- jse
Mest lesið Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Erlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Fleiri fréttir Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Sjá meira