Helmingi fleiri fá undanþágu hjá LÍN 19. ágúst 2011 03:00 Margir hafa nýtt sér nýtt fyrirkomulag LÍN eftir efnahagshrunið með því að sýna fram á greiðsluörðugleika.fréttablaðið/stefán
Veittar undanþágur til greiðenda Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN) hafa meira en tvöfaldast síðan árið 2008. Samkvæmt upplýsingum frá Haraldi Guðna Eiðssyni, stjórnarformanni LÍN, má einna helst rekja fjölgunina til þess að í kjölfar efnahagshrunsins og aukinna greiðsluerfiðleika einstaklinga jukust umsóknir um undanþágur og rýmkaði því sjóðurinn á árunum 2009 og 2010 skilyrði til að fá undanþágu frá greiðslu. Í fyrra voru veittar undanþágur tæplega þrjú þúsund, eða 2.938 og 5 prósenta hlutfall af öllum greiðsluseðlum. Árið 2008 voru veittar undanþágur 1.231 og 2,2 prósenta hlutfall af greiðsluseðlum. Í flestum tilfellum eru undanþágurnar til komnar vegna þess að greiðandi hefur aftur hafið lánshæft nám, er atvinnulaus eða á örorkubótum. Eins og áður sagði var ákveðið á síðasta ári að auka svigrúm til að fá undanþágur frá greiðslum. Einnig var komið á nýju greiðsluúrræði þar sem fólk gat fryst afborganir í allt að þrjú ár. 370 manns nýttu sér úrræðið, en þurftu með því að sýna fram á greiðsluerfiðleika til að eiga rétt á frystingu. Haraldur útskýrir að með þessum úrræðum hafi sjóðnum tekist að vissu marki að mæta því efnahagslega ástandi sem ríkt hefur hér á undanförnum árum. Haraldur segir að þrátt fyrir þessa miklu fjölgun greiðslna sem veittar hafa verið undanþágur fyrir, standi sjóðurinn vel. „Auðvitað er betra þegar fólk getur staðið í skilum en þetta skapar ekki bein vandamál fyrir Lánasjóð íslenskra námsmanna,“ segir hann. „Greiðslurnar verða ekki niðurfelldar eða afskrifaðar og stóra myndin er sú að við getum tekið svona tímabundnu ástandi.“ Haraldur segir að tölfræðin fyrir árið í ár sé enn tiltölulega ómarktæk þar sem flestir greiðendur hafi aðeins fengið annan af tveimur greiðsluseðlum sendan, en síðari gjalddagi er 1. september næstkomandi. „En við sjáum það af tölunum að hugsanlega aukist vanskil eitthvað í ár, það kemur þó ekki endanlega í ljós fyrr en árið er gert upp,“ segir hann. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Erlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Fleiri fréttir Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Sjá meira