Allir komnir með gistingu á Alicante 19. ágúst 2011 11:44 Mynd úr safni
Búið er að tryggja 125 farþegum af þeim 211 sem ekki komust með flugvél Iceland Express frá Alicante í gærkvöldi gistingu á tveimur hótelum í borginni. Aðrir farþegar gátu horfið til íbúða á þeirra eigin vegum. Verið er að vinna í að leigja flugvél til að koma hópnum heim til Íslands. Iceland Express sér farþegum fyrir gistingu og fæði á meðan beðið er heimferðarinnar. Þetta kemur fram í tilkyningu frá Iceland Express. Við lendingu Boeing 757-200 flugvélar Iceland Express í Alicante í gærkvöldi gaf tækjabúnaður flugvélarinnar til kynna að skoða þyrfti annan hreyfil hennar. Flugvélin átti að fara í loftið kl. 23:10 að íslenskum tíma, en af öryggisástæðum var fluginu frestað. Að sögn Heimis Más Péturssonar, upplýsingafulltrúa Iceland Express, var starfsmaður fyrirtækisins á flugvellinum og miðlaði upplýsingum til farþega jafnóðum og þær lágu fyrir og áhafnarmeðlimir gerðu það einnig. Búið var að loka nánast öllum veitingastöðum á flugvellinum en engu að síður tókst að fá veitingar fyrir allan hópinn. „Mjög erfitt er að fá hótel fyrir svo stóran hóp á Alicante þessa dagana, bæði vegna þess að þar er nú háanatími ferðaþjónustunnar og að auki fara fram tveir stórir viðburðir á svæðinu um helgina.Fljótlega tókst starfsfólki Iceland Express að finna nokkur hótelherbergi og naut fólk með börn forgangs sem og fatlaðir einstaklingar í hópnum. Barnafjölskyldur voru komnar á hótel rúmri klukkustund eftir að fyrir lá að flugvélin færi ekki til Íslands í gærkvöldi. Þá tókst að finna sérútbúinn bíl fyrir stóra hjólastóla til að flytja þá sem fatlaðir eru á hótel.Hópur útskriftarnema frá Menntaskólanum á Ísafirði, um sextíu manns, þurfti að dvelja á flugvellinum til um klukkan sjö í morgun, en þá tókst að finna hótel fyrir hópinn. Fólkið fékk veitingar á kostnað Iceland Express á meðan það beið. Þá ræddi upplýsingafulltrúi Iceland Express við tvo einstaklinga úr hópnum í nótt og gaf þeim allar upplýsingar sem lágu fyrir og bað um að upplýsingunum yrði komið áfram til annarra í hópnum. Einnig fengu þessir aðilar uppgefið símanúmer upplýsingafulltrúans sem þeim var sagt að velkomið væri að hringja í ef á þyrfti að halda.Á þessari stundu liggur ekki fyrir hvenær leiguflugvél fæst til að flytja fólkið heim, en upplýsingar um gang mála verða gefnar jafn óðum og þær liggja fyrir," segir í tilkynningu.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Segja engan fund á dagskrá Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira