Mun ekki ráðast í frekari athugun á fjárhagsstöðunni 19. ágúst 2011 16:50 Hilmar Oddsson, skólastjóri Kvikmyndaskóli Íslands
Ríkisendurskoðun vill koma því á framfæri að stofnunin mun ekki að eigin frumkvæði ráðast í frekari athugun á fjárhagsstöðu Kvikmyndaskóla Íslands eða fjárhagslegum samskiptum hans við ríkisvaldið. Í tilkynningu frá Ríkisendurskoðun segir að mennta- og menningarmálaráðuneytið hafi óskað eftir því tíunda ágúst síðastliðinn að Ríkisendurskoðun legði mat á það hvort ráðuneytið hefði nauðsynleg gögn til að meta fjárhagslega stöðu og rekstrarhæfi skólans. „Ráðuneytið fékk afrit af minnisblaði starfsmanns stofnunarinnar til ríkisendurskoðanda þar sem fram kemur að sökum þess að bókhald skólans hefði ekki verið fært síðan í mars sl. og ársreikningar hans ekki endurskoðaðir væri erfitt að segja til um hvort gögn ráðuneytisins gæfu rétta mynd af stöðunni. Ljóst væri þó að skólinn væri ekki rekstrarhæfur nema eiginfjárstaða hans yrði styrkt,“ segir í tilkynningunni. „Samdráttur í rekstri og/eða frestun á viðhaldi og endurnýjun búnaðar dygðu ekki til. Í þessu efni var bent á þrjár leiðir: að eigendur skólans kæmu með nýtt fé inn í reksturinn, að til kæmu verulegar afskriftir skulda eða að ríkið legði skólanum til fé og hækkaði árleg framlög til hans. Tekið var fram í minnisblaðinu að ekki væri rétt að mæla með síðastnefndu leiðinni meðan svo mikil óvissa ríkti um rekstur skólans. Að svo stöddu mun Ríkisendurskoðun ekki að eigin frumkvæði ráðast í frekari athugun á fjárhagsstöðu skólans eða fjárhagslegum samskiptum hans við ríkisvaldið,“ segir ennfremur í tilkynningunni.
Mest lesið Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Fleiri fréttir Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Sjá meira