Lyfjafræðingar Lyf og heilsu áminntir 19. ágúst 2011 17:15 Myndin er úr safni.
Siðanefnd Lyfjafræðingafélags Íslands hefur úrskurðað að þrír félagsmenn sem tengdust broti Lyf og heilsu gagnvart Apóteki Vesturlands, hafi í því máli brotið með háttsemi sinni fjórar greinar siðareglna félagsins. Þetta kemur fram á fréttavefnum Skessuhorni. Nefndin mun veita lyfjafræðingunum þremur, Eysteini Arasyni, Gylfi Garðarssyni og Jóni Þórðarsyni áminningu. Á þeim tíma sem brotin voru framin var Eysteinn lyfjastjóri Lyf og heilsu, Gylfi lyfsali fyrirtækisins á Akranesi og Jón gæðastjóri Lyf og heilsu. Samkeppniseftirlitið úrskurði á sínum tíma að Lyf og heilsa hafi brotið gegn 11. gr. samkeppnislaga með aðgerðum sínum gegn Apóteki Vesturlands, hafi þar misnotað markaðsráðandi stöðu sína. Úrskurðurinn var kærður til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem staðfesti úrskurð Samkeppniseftirlitsins þann 11. júní 2010. Með framferði sínu í málinu telur Siðanefnd LFÍ að ofangreindir félagsmenn hafi brotið þá meginreglu Alþjóðasamtaka lyfjafræðinga að vinna af heiðarleika og trúmennsku í samskiptum sínum við aðrar heilbrigðisstéttir, þar á meðal lyfjafræðinga, að taka ekki þátt í neinni hegðun eða athöfn sem líkleg er til að grafa undan eða kasta rýrð á það traust sem stétt lyfjafræðinga nýtur. Greinar siðareglnanna sem lyfjafræðingarnir þrír brutu samkvæmt úrskurði siðanefndarinnar voru númer fimm, sex, sjö og tólf. Brot gegn tólftu grein siðareglna er orðrétt úr úrskurðinum: „Með aðkomu sinni að aðgerðum Lyfja og heilsu til að hindra að Apótek Vesturlands gæti í fyrsta lagi hafið starfsemi á Akranesi og í öðru lagi að apótekið gæti starfað í lögmætu samkeppnisumhverfi á Akranesi, er ljóst að allir umræddir lyfjafræðingar hafa unnið gegn samvinnu innan stéttar sinnar í stað þess að rækta hana“. Úrskurðurinn í heild sinni er birtur í nýútkomnu blaði Lyfjafræðingafélags Íslands. Hægt er að nálgast frétt Skessuhorns hér.
Mest lesið Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Erlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Fleiri fréttir Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Sjá meira