Flóttakýr búin að setja Þýskaland á annan endann 19. ágúst 2011 23:00 Yvonne á beit. Grunlaus vegfarandi náði þessari mynd af Yvonne en þá var hennar ekki ákaft leitað eins og nú.
Þýska flóttakýrin Yvonne hefur sett Þýskaland á annan endann. Dýraverndunarsinnar leita hennar ákaft, þýska blaðið Bildt hefur lofað hverjum þeim sem bjargar henni tíu þúsund evrur á meðan lögreglan hefur gefið veiðimönnum grænt ljós á að skjóta hana af færi. Og það sem meira er; hindúar eru brjálaðir. Það var í maí sem kýrin Yvonne strauk af búgarði í Bavaría í Þýskalandi en til stóð að slátra henni. Lífsvilji kýrinnar var slíkur að hún laumaði sér á óskiljanlegan hátt framhjá rafmagnsgirðingu á búgarðinum og hvarf. Í þrjá mánuði spurðist lítið til hennar þar til lögreglubíll ók næstum á hana. Í kjölfarið ákvað lögreglan að kýrin væri hættuleg umferð á svæðinu og gaf út tilkynningu um að veiðimönnum væri frjálst að fella hana. Veiðimennirnir á svæðinu eru reyndar alræmdir, en þeir felldu skógarbjörn árið 2006, þann fyrsta sem sést hefur til í Þýskalandi í 170 ár. Dýraverndunarsinnar brugðust því ókvæða við þegar fregnir bárust af fyrirskipun lögreglunnar og buðust til þess að kaupa kúna af búgarðinum fyrir um 600 evrur. Til þess að finna kýrina á undan veiðimönnum fengu dýraverndunarsinnar nautið Ernst til þess að baula á svæðinu til þess að lokka Yvonna úr fylgsni sínu. Þeir lýstu nautinu sem Georg Clooney nautanna, og að djúpur bassi Ernst yrði til þess að Yvonne myndi ekki ráða við sig og leita til sjarmörsins í von um rómantíska stund. Sú hugmynd reyndist þó andvana fædd þegar í ljós kom að Ernst hafði verið geldur. Þá voru góð ráð dýr. Franziska Matti, dýramiðill, var þá kölluð til, en hún segist geta átt samskipti við dýr með hugarorkunni einni. Hún heldur því fram að hún hafi rætt við Yvonne, sem sagðist hafa það gott, en hún væri ekki tilbúin til þess að koma úr felum. Á laugardaginn síðasta breyttist leitin að Yvonne í nokkurskonar gullæði. Blaðið Bildt lofaði hverjum þeim sem fyndi kúna, og skilaði henni á heilu og höldnu, tíu þúsund evrur. Ekkert hefur þó spurst til Yvonne, einn ellefu ára gamall gutti sagðist þó hafa fundið hófför Yvonne. Nú hafa dýraverndunarsamtökin gert út þyrlu til þess að finna kúna auk þess sem kálfur Yvonne, Friesi, undirgengst nú stranga þjálfun til þess að kalla á móður sína, en mikil tilfinningabönd ríkja á milli kúa og kálfa, að mati dýraverndunarsinna. Auk dýraverndunarsinna þá hefur samfélag Hindúa í Þýskalandi sent út fréttatilkynningu þar sem þeir gagnrýna þýsk yfirvöld harðlega fyrir að gefa út leyfi til þess að drepa dýrið. Hindúarnir, sem telja kýr heilög dýr, krefjast þess að leyfið til þess að drepa verði afturkallað. Við því hefur þó ekki verið orðið. Enn leita Þjóðverjar að Yvonne og því málinu langt því frá að vera lokið. Hægt er að nálgast frekari fréttir um ótrúlega leit að Yvonne hér og hér.
Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls Innlent Fleiri fréttir Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Gerðu árás á Beirút í fyrsta skipti eftir að vopnahlé tók gildi Ted Turner er látinn Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Telja sig hafa fundið lofthjúp utan um örreikistjörnu handan við Plútó Íslendingar mótmæla við skála Rússa á Feneyjatvíæringnum Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanaríeyja Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Engin ríkisstjórn enn og stefnir í met Stefna á að hýða eineltisseggi í Singapúr Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Sjá meira