Meirihluti utanríkismálanefndar vill Árna Pál 20. desember 2011 06:00
Meirihluti utanríkismálanefndar beinir því til ríkisstjórnarinnar að fyrirsvar í dómsmálum og öðru því sem snýr að Icesave gagnvart ESA og EFTA-dómstólnum sé áfram í höndum efnahags- og viðskiptaráðherra. Þetta kom fram í bókun meirihlutans, en hann mynda tveir fulltrúar Sjálfstæðisflokks, tveir frá Framsóknarflokki og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Vinstri grænum. Fjórir fulltrúar Samfylkingar og VG lögðu hinsvegar til að málið yrði hér eftir í forsvari utanríkisráðherra og Birgitta Jónsdóttir, Hreyfingu tók undir þau sjónarmið. Hún er hinsvegar aðeins áheyrnarfulltrúi í nefndinni. Á fund nefndarinnar í gærkvöldi mættu einnig ráðuneytisstjórar forsætis- og utanríkisráðuneytisins ásamt sérfræðingi í málefnum EFTA-dómstólsins. Sögðu þeir málið heyra undir utanríkisráðherra. „Ýmis fordæmi eru fyrir þeirri tilhögun að fagráðherra fari með fyrirsvar í tilteknum milliríkjamálum og eðlilegt er að efnahags- og viðskiptaráðherra hafi áfram samráð um allar ákvarðanir í málinu við utanríkismálanefnd Alþingis. Þá hlýtur að teljast æskilegt að úrvinnsla Icesave sé ekki á sömu hendi og aðildarviðræður við Evrópusambandið. Í ljósi forsögu málsins er mikilvægt að aðkoma að málinu byggi á raunverulegu samráði allra flokka á Alþingi og að sem víðtækust sátt ríki um málsmeðferðina í samfélaginu," segir í bókun meirihlutans. „Meirihluti nefndarmanna, fimm fulltrúar af níu, leggja því áherslu á að Árni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra fari áfram með fyrirsvar Icesavemálsins gagnvart ESA og EFTA dómstólnum. Minnihluti nefndarinnar, fjórir fulltrúar, lögðu fram aðra bókun. Ríkisstjórn Íslands hlýtur að taka tillit til vilja meirihluta utanríkismálanefnar," segir að lokum.
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Sjá meira