Hreyfingin beðin um að verja ríkisstjórnina falli 29. desember 2011 14:06
Viðræður ríkisstjórnarinnar og Hreyfingarinnar standa enn yfir samkvæmt heimildum Vísis. Þreifingar hófust fyrir jól, en það voru þingmenn ríkisstjórnarinnar sem komu fyrst að máli við þingmenn Hreyfingarinnar. Í kjölfarið var komið á fundi á milli oddvita ríkisstjórnarinnar og þingmanna Hreyfingarinnar. Fyrsti fundur var á Þorláksmessu. Umræðuefnið var hvort Hreyfingin væri tilbúin að verja ríkisstjórnina falli kæmi til þess. Í tilkynningu frá Hreyfingunni í dag segir að þingmennirnir hafi átt í óformlegum viðræðum við oddvita ríkisstjórnarflokkana um helstu áherslumál Hreyfingarinnar í stjórnmálum er lúta að þjóðaratkvæðagreiðslum, persónukjöri og nýrri stjórnarskrá. Heimildir Vísis herma að Hreyfingin vilji að Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra, og Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, víki úr embættum sínum náist samkomulag á milli flokkanna. Staða Jóns hefur verið erfið, ekki síst eftir að hann vann upp á sitt einsdæmi nýtt fiskveiðistjórnarfrumvarp án aðkomu annarra þingmanna. Litið var á þetta sem trúnaðarbrest og krafan um að Jón viki sem ráðherra varð mjög hávær. Miðað við þreifingar ríkisstjórnarinnar þá virðist hún standa á brauðfótum, sé litið til þess að ríkisstjórnin freisti nú þess að fá Hreyfinguna til þess að verja ríkisstjórnina falli.
Tengdar fréttir Hreyfingin átti í viðræðum við ríkisstjórnina Þingmenn Hreyfingarinnar hafa undanfarna daga átt í óformlegum viðræðum við oddvita ríkisstjórnarflokkana um helstu áherslumál Hreyfingarinnar í stjórnmálum er lúta að þjóðaratkvæðagreiðslum, persónukjöri og nýrri stjórnarskrá. Þetta kemur fram í tilkynningu frá þingflokki Hreyfingarinnar. 29. desember 2011 13:06 Mest lesið „Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent „Ég hef engar vísbendingar fengið um að þetta sé að gerast“ Innlent Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Innlent Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Innlent Ósköp venjuleg kona ráðin sem leigumorðingi eftir kynni á stefnumótaforriti Erlent Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Lífið Óprúttnir aðilar hóta rofinni rafmagnstengingu berist greiðsla ekki strax Innlent Teiknaði hakakross á hurðina hjá nágrannanum Innlent Allir gangi hamingjusamir úr nýjustu sundlaug landsins Innlent Öfgahægriflokkur mælist stærstur í Þýskalandi Erlent Fleiri fréttir Rannsókn á „bíræfnum“ þjófnaði á viðkvæmu stigi Niðurgreiðsla sálfræðiþjónustu verði tryggð Niðurgreidd sálfræðiþjónusta, tollar á lyf og hitamet Óprúttnir aðilar hóta rofinni rafmagnstengingu berist greiðsla ekki strax „Ég hef engar vísbendingar fengið um að þetta sé að gerast“ Allir gangi hamingjusamir úr nýjustu sundlaug landsins Ástandið á Gasa: 42 prósent telja að Íslendingar ættu að beita sér meira „Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Teiknaði hakakross á hurðina hjá nágrannanum Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Skrefi nær draumnum um þjónustuíbúð með vinningnum Minkurinn stakk sér á kaf eftir fiski í Elliðaám Íslendingur á Spáni sagður þungt haldinn vegna hitaslags „Ómetanlegur fjársjóður“ í heimsókn á Íslandi Tilkynnt um bíl fullan af bensínbrúsum Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Tollarnir sem bíta nú þegar, sögulegur fundur og fjársjóður Fækkar sífellt í Þjóðkirkjunni Rithöfundur ráðinn til varnarmálaskrifstofunnar Barinn við barinn en gerandinn farinn Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Gerðu langtímasamning um niðurgreidd liðskipti og brjóstaminnkun Dagbjartur aðstoðar Daða Má Innviðaráðherra leggur af stað í fundaferð um samgöngumálin Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Fagnar áformum um mótun atvinnustefnu Úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um íkvekju Hlið við Reynisfjöru, tollar og yfirlýsing leiðtoga ESB Sjá meira
Hreyfingin átti í viðræðum við ríkisstjórnina Þingmenn Hreyfingarinnar hafa undanfarna daga átt í óformlegum viðræðum við oddvita ríkisstjórnarflokkana um helstu áherslumál Hreyfingarinnar í stjórnmálum er lúta að þjóðaratkvæðagreiðslum, persónukjöri og nýrri stjórnarskrá. Þetta kemur fram í tilkynningu frá þingflokki Hreyfingarinnar. 29. desember 2011 13:06
„Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent
„Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent