Messi: Sárt að þurfa að hlusta á baulið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. nóvember 2011 10:00 Lionel Messi. Mynd/AP
Það skilja fáir í döpru gengi argentínska landsliðsins enda hefur liðið heimsklassaleikmenn innanborðs eins og Lionel Messi, Javier Mascherano, Javier Pastore, Angel di Maria og Sergio Aguero. Knattspyrnuáhugamenn í Argentínu hafa undanfarið haft mun fleiri tækifæri til að baula á landsliðið sitt en að fagna mörkum eða góðum sigrum. Lionel Messi er vanur því að vera hyltur hjá Barcelona og segir að það sér erfitt að hlusta á baulið þegar hann kemur heim til Argentínu. Argentínumenn létu landsliðsmenn sína enn á ný heyra það í jafnteflinu á móti Bólívíu á föstudagskvöldið en í leiknum á undan hafði Argentína tapað á móti Venesúela. Argentína hefur þar með aðeins náð í fjögur stig í fyrstu þremur leikjum sínum í undankeppni HM 2014. „Heimsmeistarakeppnin, Suður-Ameríkukeppnin og núna þetta. Þetta er búið að vera mjög erfitt og það er sárt að hlusta á baulið. Það gerir mig reiðan að ná ekki að vinna þessa leiki," sagði Lionel Messi sem hefur aðeins náð að skora 5 mörk í síðustu 22 landsleikjum sínum sem þykir ekki mikið mann sem hefur skorað 76 mörk í síðustu 73 leikjum sínum með Barcelona. „Það hafa verið svo mörg vonbrigði að undanförnu og ég bara veit ekki hvort við getum beðið argentínsku þjóðina um meiri þolinmæði," sagði Messi sem fékk afhent fyrirliðaband argentínska landsliðsins fyrir undankeppni HM. Hann veit það vel að hann mun aldrei eiga möguleika á því að vera talinn besti knattspyrnumaður sögunnar fyrr en hann nær að vinna eitthvað með argentínska landsliðinu og eins og liðið er að spila í dag er einhver bið í það.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport „Ég get ekki breytt þessu“ Íslenski boltinn Sjáðu alla dramatíkina hjá Bayern og Real Fótbolti Völdu kærustu hennar líka númer eitt Körfubolti Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Enski boltinn „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ Fótbolti LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Golf Fleiri fréttir Átti Camavinga skilið spjald? „Ekki eins og hann taki boltann og negli honum í burtu“ Sjáðu alla dramatíkina hjá Bayern og Real „Ég get ekki breytt þessu“ Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Þú ert farinn að verða þybbinn“ „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Arsenal tókst ekki að skora en komst samt áfram í undanúrslit „Þetta var skandall“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta „Framtíð fótboltans er í góðum málum með þennan gutta“ „Þeir geta tekið þetta með sér“ Oliver keyptur til KA Gæti misst fjóra leikmenn í bann og vill breyta reglunum Real Madrid goðsögn fallin frá Ekitike sleit hásin „Þessu einvígi var stolið frá okkur“ Sjáðu Dembélé skjóta Liverpool úr leik og markið mikilvæga hjá Atlético Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Gylfi eftirlitsmaður hjá Arsenal í Meistaradeildinni „Svo margir dómar hafa fallið gegn okkur“ Atlético Madrid í undanúrslit eftir mikla dramatík PSG sótti sigur á Anfield og sló Liverpool út Isak byrjar hjá Liverpool en Salah er aftur á bekknum Hættur að þjálfa Messi fjórum mánuðum eftir titilinn Uppgjörið: Ísland - Úkraína 1-0 | Stelpurnar okkar nældu í þrjú stig Thelma Karen í byrjunarliðinu „Þau gefa okkur ótrúlega mikið með því að sýna okkur áhuga“ Sjá meira