Innlent

Ölvaður ökumaður slapp ómeiddur úr bílveltu

Ölvaður ökumaður slapp ómeiddur þegar hann velti jepplingi sínum á mótum Lönguhlíðar og Háteigsvegar í gærkvöldi.

Sjúkrabíll var sendur á vettvang, en ekki reyndust not fyrir hann, en í staðinn fékk ökumaður far með lögreglubíl niður á stöð þar sem hann var vistaður í fangageymslu í nótt.

Slökkviliðsmenn hreinsuðu svo upp olíu, sem lekið hafði úr bílnum við veltuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×