Innlent

Strokupiltarnir fundust heilir á húfi

Drengirnir þrír sem struku frá meðferðarheimilinu Háholti í Skagafirði í gærkvöldi eru fundnir, heilir á húfi.

Björgunarsveitamenn komu auga á þá á gangi í Varmahlíð rétt eftir klukkan átta í morgun, að því er segir í tilkynningu frá Landsbjörgu.

Björgunarsveitir frá Austur- Húnavatnssýslu og Skagafirði hafa leitað drengjanna í alla nótt. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×