Welbeck og Jones koma ekki í Laugardalinn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. október 2011 13:00 Danny Welbeck ásamt Ryan Giggs. Nordic Photos / Getty Images
Þeir Danny Welbeck og Phil Jones, leikmenn Manchester United, voru í gær valdir í A-landslið Englands og koma því ekki með U-21 liðinu til Íslands fyrir leik liðanna á fimmtudaginn. Hið sama má segja um Kyle Walker hjá Tottenham. Welbeck og Jones voru báðir valdir í landsliðshóp Stuart Pearce, þjálfara U-21 liðs Englands, en voru svo kallaðir í landsliðshóp Fabio Capello í gær, rétt eins og Walker sem skoraði í gær sigurmark Tottenham gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni. Fram undan er mikilvægur leikur Englands gegn Svartfjallalandi í undankeppni EM 2012 en leikmennirnir þrír hafa staðið sig vel með sínum liðum í upphafi leiktíðarinnar. Það eru þó fjölmargir þekktir leikmenn sem koma með U-21 liði Englands hingað til lands. Meðal þeirra má nefna þá Jordan Henderson og Martin Kelly hjá Liverpool, Arsenal-manninn Alex Oxlade-Chamerblain, þá Ross Barkley og Jack Rodwell hjá Everton og Nathan Delfouneso frá Aston Villa. Rodwell komst í fréttirnar um helgina fyrir að fá beint rautt spjald í leik Everton og Liverpool en dómurinn þótti ansi harður. Hér má sjá leikmannahóp A-landsliðs Englands sem var valinn í gær:Markverðir: Scott Carson, Joe Hart, David Stockdale.Varnarmenn: Leighton Baines, Gary Cahill, Ashley Cole, Phil Jagielka, Phil Jones, Micah Richards, John Terry, Kyle Walker.Miðvallarleikmenn: Gareth Barry, Stewart Downing, Adam Johnson, Frank Lampard, James Milner, Scott Parker, Theo Walcott, Ashley Young.Sóknarmenn: Darren Bent, Andy Carroll, Wayne Rooney, Danny Welbeck, Bobby Zamora.
Fótbolti Tengdar fréttir Phil Jones og Danny Welbeck báðir á leiðinni á Laugardalsvöllinn Manchester United mennirnir Phil Jones og Danny Welbeck voru báðir valdir í landsliðshóp Stuart Pearce fyrir komandi leiki við Ísland og Noreg í undankeppni EM. Leikurinn við Ísland fer fram á Laugardalsvellinum 6. október næstkomandi. 28. september 2011 16:30 Mest lesið Missti typpið út úr buxunum en náði samt besta tíma ársins Sport Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Körfubolti John Andrews um uppsögnina: „Kom mér mjög á óvart“ Íslenski boltinn Átti fullkomið hlaup fyrir aftan nöfnu sína frá Moldóvu Sport Fjalla um stórt tap mótherja Íslands í leynileik við U15-strákalið Fótbolti Meidd og mætir Íslandi ekki á EM: „Áfall fyrir Noreg“ Fótbolti Keypti net í fluginu út á EM til að horfa á Systraslag Sport Vissu ekki að hún hefði skipt um landslið Sport Áhugamannaliðið gerði jafntefli og græddi milljón dollara Fótbolti Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Körfubolti Fleiri fréttir Svekkjandi tap eftir misheppnaða sendingu John Andrews um uppsögnina: „Kom mér mjög á óvart“ Barcelona snýr loks aftur á Nývang en ekki að fullu Meidd og mætir Íslandi ekki á EM: „Áfall fyrir Noreg“ Fjalla um stórt tap mótherja Íslands í leynileik við U15-strákalið Lyon mun áfrýja og Crystal Palace í óvissu Pogba fer til Mónakó frekar en Bandaríkjanna eða Sádi-Arabíu Áhugamannaliðið gerði jafntefli og græddi milljón dollara Delap skoraði fyrsta markið og Chelsea komst áfram Átján ára gömul og að verða launahæst í sænsku deildinni „Botafogo ekki í Bandaríkjunum til að hitta Mikka mús“ Eiginkonan gaf Messi strumpaköku í afmælisgjöf Benfica vann Bayern og vann riðilinn KR-ingar í Melabúðinni um stöðu liðsins: „Verða að gyrða sig í brók“ Reka stórlið Lyon úr frönsku deildinni Höskuldur fékk tveggja leikja bann eftir ofsalega framkomu Staðfesta kaupin á Alberti Guðmunds Gefa öllum nýfæddum börnum búning félagsins Guardiola sýndi takta á ströndinni með leikmönnum sínum Þurfa að færa leik í ensku úrvalsdeildinni vegna krikketmóts Furðar sig á fjarveru Lárusar Orra: „Finnst þetta skrítið“ Ná samkomulagi um kaup á Alberti John Andrews og Björn reknir Verðug verkefni bíða Breiðabliks og Vals í Meistaradeildinni Óskar láti gagnrýnisraddir úr Vesturbæ sem vind um eyru þjóta Fóru yfir lætin í Kópavogi: „Höskuldur tryllist strax frá byrjun“ Sjáðu mörkin úr Bestu: Valur rústaði KR og tvö rauð fóru á loft í Kópavogi Bestu mörkin: Völdu draumalið Íslands á EM og engin þeirra eru eins Lofar að taka „Siu“ fagn Ronaldo ef hann skorar á móti Messi Halldór: Sundur spiluðum Fram Sjá meira
Phil Jones og Danny Welbeck báðir á leiðinni á Laugardalsvöllinn Manchester United mennirnir Phil Jones og Danny Welbeck voru báðir valdir í landsliðshóp Stuart Pearce fyrir komandi leiki við Ísland og Noreg í undankeppni EM. Leikurinn við Ísland fer fram á Laugardalsvellinum 6. október næstkomandi. 28. september 2011 16:30