Árvakur uppfyllir ekki kröfur banka 18. september 2011 19:30
Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, uppfyllir ekki lengur skilyrði í lánasamningi við Íslandsbanka sem kveður á um lágmarks eigið fé og rekstrarhagnað. Félagið á í viðræðum við bankann um fjármögnun og óvíst er hver niðurstaðan verður. Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, tapaði 330 milljónum króna í fyrra samkvæmt ársreikningi en eignir félagsins voru um 2,9 milljarðar króna í lok árs og eiginfjárhlutfallið 23,5 prósent. Í yfirliti yfir langtímaskuldir Árvakurs kemur fram að skuld félagsins við innlenda banka, sem er Íslandsbanki, hafi numið 1,7 milljörðum króna í árslok 2010. Í gildandi samningum Árvakurs við Íslandsbanka þarf hagnaður fyrir skatta og afskriftir að duga fyrir afborgunum lána, en samkvæmt áætlun í lánasamningi þarf Árvakur að greiða a.m.k níutíu milljónir króna á ári í afborganir næstu fimm árin. Sérstaka athygli vekur í skýringum með ársreikningnum að forráðamenn Árvakurs hafi átt í viðræðum við Íslandsbanka þar sem Árvakur uppfylli ekki lengur skilyrði í lánasamningi sem kveður á um eiginfjár- og rekstrarhagnaðarhlutfall. Þ.e félagið uppfyllir ekki lengur kröfu bankans um hagnað af rekstri og lágmarks eigið fé. Í skýringum segir að viðræðurnar við bankann gangi út á að endursemja um fjármögnun lána, en ekki sé fyrirséð hver niðurstaðan verður. Lánið við bankann hafi verið í frystingu frá því samningaviðræður hófust. Þá segir að „rekstrarhæfi Árvakurs ráðist af niðurstöðu viðræðna við Íslandsbanka." En í sumum tilvikum getur lánveitandi gjaldfellt lán brjóti lántakandi samninga af þessu tagi. Óskar Magnússon, útgefandi Árvakurs, sagði í samtali við fréttastofu að framtíð Árvakurs væru ekki í óvissu þrátt fyrir að þessi mál gagnvart bankanum væru enn óleyst. Hann sagði besta mælikvarðann á rekstur Árvakurs vera þann viðsnúning sem hefði orðið á undanförnum tveimur árum en fyrirtækið hefði farið úr tæplega 500 milljóna króna rekstrartapi á árinu 2009 í að hagnaður fyrir skatta, fjármagnsliði og afskriftir á miðju þessu ári hefði verið um þrjátíu milljónir króna.
Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Velja Viljandi villt Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður Fleiri fréttir „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Sjá meira