Starfshópur skipaður vegna alvarlegrar stöðu svartfuglastofna 19. september 2011 12:55 Algjört hrun hefur orðið í lundastofninum.
Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, hefur skipað starfshóp sem ætlað er að gera tillögur um aðgerðir sem stuðlað geti að endurreisn svartfuglastofna hér við land. Þá skal hópurinn gera tillögur um hvernig megi styrkja verndun og sjálfbæra nýtingu stofnanna. Starfshópurinn er skipaður vegna alvarlegrar stöðu svartfuglastofna hérlendis. Honum er ætlað að fjalla sérstaklega um veiðar og nýtingu svartfugls og hvort breytingar á lögum eða reglum er varða nýtingu á svartfugli, þar með talinni eggjatöku, geti komið að gagni við endurreisn svartfuglastofna og þá með hvaða hætti það megi verða. Veruleg fækkun hefur verið í nokkrum stofnum sjófugla undanfarin misseri og segja má að hrun hafi verið í lundastofninum. Lélegur varpárangur hefur verið hjá lunda, sérstaklega á sunnanverðu landinu sl. 4-5 ár og í fyrra varð algjör viðkomubrestur í lundavarpi á Suðurlandi. Stuttnefju hefur fækkað um allt land og álku og langvíu um sunnan- og vestanvert landið, en stofnar þeirra hafa haldið nokkuð í horfinu um norðanvert landið. Orsakir fækkunar og viðkomubrests sjófugla virðast að mestu leyti vera fæðuskortur, en fuglarnir lifa einkum á sandsíli og loðnu. Hrun varð á sandsílastofninum árið 2000 og hefur hann ekki náð sér á strik síðan en loðnustofninn hefur verið í lægð sl. áratug. Veiðar á sjófuglum hafa ekki verið taldar hafa veruleg áhrif á fækkun stofna þeirra, en eru hins vegar sá þáttur sem mest er hægt að hafa áhrif á til að milda áfallið. Hópnum er ætlað að skila tillögum sínum til umhverfisráðuneytisins eigi síðar en 31. október 2011.
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Fleiri fréttir Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Sjá meira