Framleiðir lífrænar snyrtivörur úr íslensku regnvatni Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 11. ágúst 2011 18:40
David Coaten kom hingað ásamt íslenskri konu sinni fyrir nokkrum árum og framleiðir nú lífræna áburði, krem og varasalva undir nafninu Alkemistinn og lífræn te sem heita Grasakver. Vörurnar hafa fengið góðar viðtökur í verslunum með lífrænar vörur hér á landi og verða bráðum fáanlegar í flugvélum Icelandair. ,,Þegar talað er um að þetta sé lífrænt er það ekki aðeins að það sé ræktað án meindýraeiturs, áburðar og þess háttar heldur má rekja það allt til upprunans, bújarðarinnar og akursins." segir David. David býr til allar vörurnar frá grunni og notar jurtir og olíur bæði innfluttar og íslenskar. Þá segir hann íslenska vatnið alveg einstakt. ,,Ég tel að íslenska vatnið og hreinleiki þess sé sá mesti sem fyrirfinnst í veröldinni. Mig langaði því að komast að kjarnanum og það er ástæða þess að við fluttum hingað, þ.e. til að nýta okkur þetta vatn. Ég er ekki aðeins að tala um vatnið sem fólk drekkur hér. Ég nota vatn sem ég safna og er í raun rigningarvatn. Ég eima úr því og svo nota ég einnig bráðnaðan snjó." David segir að rannsóknir hafi sýnt að vatn sem staðsett er við mismunandi aðstæður til dæmis á rokktónleikum eða í kirkju hafi mismunandi munstur þegar það frýs. ,,Það er eins og vatnið taki við titringnum og ef maður hugleiðir það að vatn er 70-80% af líkamsþyngd okkar hefur það vissulega áhrif á vatnsbúskap okkar hvernig við komum fram við hvert annað." Því sé mikilvægt að vera einnig rólegur við meðhöndlun vatnsins þegar hann framleiðir snyrtivörurnar. ,,Þetta líkist því þegar maður eldar máltíð og gefur sig allan í verkið. Þá bragðast maturinn mun betur en ella." segir David að lokum.
Mest lesið Eftirförin endaði með hvelli Innlent Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Fleiri fréttir „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Sjá meira