Líkamstjáning og daður á námsskránni Erla Hlynsdóttir skrifar 12. ágúst 2011 09:27 Ástfangið par Mynd úr safni
Þeir sem vilja komast í fast samband en reynist það erfitt, hvort sem það er vegna slæmrar reynslu, óframfærni eða af öðrum ástæðum, geta nú farið á sérstakt námskeið hjá Kvíðameðferðarstöðinni fyrir fólk í makaleit. „Víða erlendis eru til fyrirtæki sem sérhæfa sig í að auðvelda fólki fólki í makaleit að kynnast öðrum en á Íslandi hefur þetta vantað. Þetta námskeið er viðleitni okkar til að veita fólki þau tæki og tól sálfræðinnar sem geta nýst á þessum vettvangi. Suma langar ekkert að vera í sambandi og það er hið besta mál. En þeir sem eiga sér þennan draum heitastan geta nú nýtt sér þekkingu sálfræðinnar á þessu sviði og unnið markvisst að þessu málefni," segir Sóley D. Davíðsdóttir sálfræðingur hjá Kvíðameðferðarstöðinni. Með haustinu fer hún, ásamt dr. Gyðu Eyjólfsdóttur, af stað með nýtt námskeið þar sem hugræn atferlismeðferð er nýtt til að gera fólki makaleitina auðveldari. Hjá Kvíðameðferðarstöðinni eru ýmis námskeið í boði, svo sem fyrir fólk með félagsfælni, svefnvanda eða ofsakvíða. Þær Sóley og Gyða segja að í starfi sínu sem sálfræðingar hafi þær rekist á fólk sem hefur verið einhleypt lengi, langar að finna sér maka en gengur erfiðlega að komast í gott samband. Á námskeiðinu verður meðal annars farið í samskipti kynjanna, öflugar samskiptaleiðir, hvar og hvernig má kynnast öðrum, áhrif hugarfars, viðhorfa og sjálfsmyndar á makaleit. Þá verður einnig farið yfir líkamstjáningu, daður og kynlíf, svo eitthvað sé nefnt. Hugræn atferlismeðferð er viðurkennt meðferðarform sem meðal annars getur hjálpað fólki að breyta líðan sinni og hafa áhrif á hugarfar og hegðun. Gyða segir að markmiðið með námskeiðinu sé að fólk verði meira framfærið, sáttara við sig og betur í stakk búið til að vinna markvisst að makaleitinni. Þá tekur Sóley fram að árangur af námskeiðum sem stöðin býður upp á sé mældur, og það sama verði gert með þetta. Sóley og Gyða segjast ekki vita til þess að boðið hafi verið upp á viðlíka námskeið hér á landi á vegum sálfræðinga. Þær benda á að á þessu sviði sem og öðrum, séu til ýmsar áhrifaríkar aðferðir sem auðvelda fólki að ná markmiðum sínum.Sjá vefsíðu Kvíðameðferðarstöðvarinnar.
Mest lesið Eftirförin endaði með hvelli Innlent Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Fleiri fréttir „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Sjá meira