Ófremdarástand á leigumarkaðnum 13. ágúst 2011 12:04 Miðbær Reykjavíkur Mynd úr safni
Ófremdarástand er á leigumarkaðnum og dæmi eru um að 40 fermetra íbúðir séu leigðar á yfir 150 þúsund krónur. Starfsmaður hjá Leigumiðlun segir mikilvægt að bankarnir komi inn á leigumarkaðinn enda séu hundruðir íbúða í eigu bankanna auðar. Húsaleiga á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað jafnt og þétt á árinu. Ástandið hefur mikil áhrif á ungt fólk og námsmenn þar sem einstaklings og stúdíó íbúðir hafa hækkað mest. Herdís Brynjarsdóttir, starfsmaður hjá Leigulistanum, segir marga hreinlega ekki hafa efni á að leigja sér húsnæði.Hvernig er ástandið á leigumarkaðinum núna? „Ástandið er bara þannig að framboð er mikið minna en eftirspurn. Það munar töluvert á þeim íbúafjölda sem við höfum á listanum, sem er þó mikill, og svo þess fólks sem þyrpist til að reyna að ná í þessar eignir. Þar af leiðandi sjá leigusalar sér leik á borði að hækka leiguna aðeins," segir Herdís. Hún segir fjölda dæma um leiguverð sem sé orðið allt of hátt.Geturðu nefnt mér slík dæmi? „Það var ein til dæmis 43 fermetra íbúð í miðbæ Reykjavíkur um daginn. Hún var komin í 150 þúsund. Tveggja herbergja íbúð. Svo eru 20 fermetra stúdíóíbúðir. Menn hafa verið að reyna að fá 75 þúsund kall fyrir þannig rými sem manni finnst vera orðið full mikið sko," Herdís. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær var sagt frá þeim gríðarlega fjölda íbúða og eigna sem bankar, fjármögnunarfyrirtæki og Íbúðalánasjóður hafa leyst til sín frá hruni og standa nú auðar. Samtals eiga þessir aðilar rúmlega tvö þúsund og eitt hundrað íbúðarhúsnæði á Íslandi. Hluti þessara fasteigna eru hús á byggingarstigi og því óíbúðarhæf en stór hluti eru íbúðir sem hægt væri að leigja út. „Maður vill sjá það gerast. Þessar eignir sem bankarnir eru að leysa til sín og standa svo auðar. Maður vildi sjá það að þeir gæfu sig örlítið og kæmu þessum eignum út á leigumarkaðinn til að halda markaðnum á réttu róli," segir Herdís. Hún segir mikilvægt að leigusalar sýni sanngirni. Þannig minnki leigjendavelta og það sé öllum til góðs. „Ég held við skyldum bara muna það að við erum öll manneskjur og leigjendur þurfa bæða að geta greitt leiguna og líka lifað," segir Herdís að lokum.
Mest lesið Eftirförin endaði með hvelli Innlent Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Fleiri fréttir „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Sjá meira