Leigubílstjórinn: "Mér fannst þetta hálfskrýtið“ 18. ágúst 2011 14:46 Hilmar Kristensson hefur verið leigubílsstjóri í 15 ár en aldrei upplifað nokkuð í starfi sem jafnast á við atburði morgundagsins. Samsett mynd/Vísir
Hilmar Kristensson, leigubílsstjórinn sem kom að ungabarni sem hafði verið skilið eftir einsamalt í barnabílstól úti á gangstétt í morgun, segist hafa heyrt og séð ýmislegt á sínum 15 ára ferli sem leigubílsstjóri en aldrei upplifað neitt á borð við atburði morgunsins. „Mér náttúrulega dauðbrá" segir Hilmar, sem var að þvo bílinn sinn á bílaplani í Vesturbænum þegar hann kom auga á barnabílstól sem sat á gangstéttinni hinum megin götunnar. „Ég labbaði yfir götuna að stólnum og sá að þar var barn í, sofandi." Fyrstu viðbrögð Hilmars voru að athuga hvort stúlkan væri á lífi. Hann sagði að hún hefði verið köld viðkomu á höndum og í andliti, en svo skyndilega hafi hún hrokkið við og vaknað. „Svo beið ég þarna góða stund, hélt að fólkið væri þarna einhversstaðar inni í húsinu, en það kom enginn." Eftir að hafa rætt málið við unga stúlku sem einnig var á staðnum, afréðu þau að ráðlegast væri að hringja á lögregluna, sem var fljót á staðinn að sögn Hilmars. „Mér fannst þetta hálfskrýtið. Það er náttúrulega mjög óvanalegt að lenda í svona, sérstaklega á þessum tíma nætur." segir Hilmar, en klukkan var korter gengin í sex þegar hann fann stúlkuna. Hann segir að hún hafi ekki grátið þegar hún vaknaði, þrátt fyrir að vera stödd úti á götu með ókunnugum manni. „Krakkinn hefur bara verið hissa á þessu öllu saman."
Mest lesið „Þetta er innrás“ Innlent Vanræksla staðfest en niðurfelling málsins líka Innlent Viðkvæm gögn tengd stjórnmálaflokki séu á símanum Innlent Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Erlent Mannleg mistök leiddu til birtingar draga í stað lokaútgáfu Innlent Brugðið eftir viðtal við borgarstjóra Innlent Mínútuþögn á Menningarnótt Innlent Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Erlent Segist vilja komast til himna Erlent Færa vinsæla útitónleika yfir á sunnudag: „Ég ætla ekki bara að dæma ungmennin“ Innlent Fleiri fréttir „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn „Það er ekkert verið að innleiða einhver svakaleg próf í Kópavoginum“ Hamarsvirkjun í bið frekar en vernd Gæsluvarðhald leiðbeinandans framlengt Konur með örorkulífeyri líklegri til að vera þolendur ofbeldis Vanræksla staðfest en niðurfelling málsins líka Höfuðpaur fær þremur mánuðum lengri dóm en burðardýr Veðrið sem hlaupararnir á laugardag geta búist við „Þetta er innrás“ Viðkvæm gögn tengd stjórnmálaflokki séu á símanum Óbreyttir stýrisvextir, samræmd námspróf og breytt snið á Menningarnótt Kjósa um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar í september Enginn handtekinn vegna þjófnaðar á hraðbanka í Mosfellsbæ Brugðið eftir viðtal við borgarstjóra Mínútuþögn á Menningarnótt Kópavogsbær tekur aftur upp samræmd próf „Það er engin sleggja“ Slökktu eld í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti Mannleg mistök leiddu til birtingar draga í stað lokaútgáfu Einn hugðist bera sig og ber að ofan öskraði Ísland frumstætt samanborið við Noreg Færa vinsæla útitónleika yfir á sunnudag: „Ég ætla ekki bara að dæma ungmennin“ Kinnhestur frá Ingvari E. Sigurðssyni í tilefni af nýjum bjór „Á farsælum þrettán ára ferli hef ég bara heyrt af þessu tvívegis“ Ekkert bendi til tengsla milli bankastuldsins og Gufunesmálsins Tilkynnt um par að slást Norskir kafarar og dularfullur hraðbankaþjófnaður Líkið ekki innan um aðra sjúklinga Norsku kafararnir mættir í Haukadalsá Ekki allt sem sýnist varðandi launin Sjá meira