Erlent

Fimm ára gömul börn með átröskun

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ofurfyrirsætan Kate Moss hefur lengi verið sögð vera óeðlilega grönn og slæm fyrirmynd. Harrison segir ekki hægt að kenna fyrirsætum um. Mynd/ AFP.
Ofurfyrirsætan Kate Moss hefur lengi verið sögð vera óeðlilega grönn og slæm fyrirmynd. Harrison segir ekki hægt að kenna fyrirsætum um. Mynd/ AFP.
Börn, allt niður í fimm ára að aldri, eru lögð inn á sjúkrastofnanir í Bretlandi vegna lystarstols. Kona sem glímt hefur við lystarstol, eða anorexiu eins og sjúkdómurinn heitir á enska vísu, segir við Sky fréttastöðina að glanstímaritum sé ekki um að kenna.

Johanna Harrison var greind með lystarstol þegar hún var fimmtán ára gömul. Hún segir þó að rekja megi sjúkdóminn mun lengra aftur í tímann.

Hún segir við Sky fréttastöðina að hún muni eftir því að hún hafi farið með mikilli leynd að öllum mat þegar hún var sjö ára gömul. Hún hafi falið mat og borðað hann seint á kvöldin.

„Ég man eftir því að ég leit svo á að það væri ekki gott að fá hollan mat og ég boðaði mig því fulla af ruslfæði. Slíkt mataræði er sjálfsskemmandi. Mér var strítt í skóla og ég var óhamingjusöm. Ég blés því út og var komin í mikla yfirvigt," segir Harrison.

Á ákveðnum tímapunkti hætti Harrison því að borða. Þá fékk hún hrós fyrir að grennast.

Johanna Harrison segir ekki hægt að kenna glanstímaritum um átröskunarsjúkdóma.
Johanna segir að lystarstolið hafi ekki snúist um aðdáun á frægu fólki í glanstímaritum. Það hafi heldur ekki snúist um einhverja þrá til að verða mjög grönn. Miklu flóknari ástæður hafi legið að baki lystarstolinu.

„Ég efast um að litlar stelpur, allt niður í fimm ára að aldri, séu að skoða tímarit og hugsi með sér að þær verði að líta út eins og fyrirsæturnar. Þetta bara virkar ekki þannig. Ef þetta snerist allt um stærð og þyngt, þá væri þetta kallað þyngdarsjúkdómur," segir Harrison.

„Þetta snýst allt saman um mat og það hvernig þú getur notað mat til þess að rústa sjálfum þér. Fólk af allri þyngd og allri stærð getur fengið átraskanir," segir Harrison.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×