Innlent

Umfangsmikil kannabisræktun stöðvuð á Suðurnesjum

Plönturnar voru á ýmsum ræktunarstigum
Plönturnar voru á ýmsum ræktunarstigum Mynd Lögreglan
Fíkniefnadeild lögreglunnar á Suðurnesjum stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun í heimahúsi á fimmtudag.

Við húsleitina var lagt hald á um 200 kannabisplöntur á ýmsum ræktunarstigum.  Einnig var lagt hald á búnað til ræktunar.  Húsráðandinn var handtekinn á staðnum og við yfirheyrslu viðurkenndi hann  ræktunina og telst málið upplýst.

Lögreglan á Suðurnesjum minnir á fíkniefnasímsvarann, sem er 800-5005.  En þangað er hægt að hringda nafnlaust með ábendingar um fíkniefnamisferli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×