Á sjöunda hundrað hafa verið handteknir Jón Hákon Halldórsson skrifar 9. ágúst 2011 23:33 Lögreglumenn á vaktinni í Lundúnum. Mynd/ AFP.
Nú hafa 685 manns verið handteknir vegna óeirðanna í Lundúnum sem upphófust á laugardagskvöld. Um sextán þúsund lögregluþjónar vakta göturnar í kvöld eins og sagt hefur verið frá. Yfir hundrað lögreglumenn hafa særst í átökum við óeirðarseggi, enda svífast þeir einskis og henda öllu sem hendi er á festandi í lögregluþjónana. Í kvöld var múrsteinum hent í lögreglumenn. Samkvæmt lýsingu Sky fréttastöðvarinnar hafa átökin breiðst víða út. Þau breiddust út til Manchester í nótt og hafa verið áberaandi þar. Það sem af er kvöldi hafa 47 verið handteknir í Manchester og Salford. Lögreglan í Manchester segir ofbeldið þar í kvöld vera algerlega fordæmislaust og tilgangslaust. Fjöldi Íslendinga er staddur í Lundúnum. Vísir náði tali af ungri konu í Croydon fyrr í kvöld sem hafði ekki komist til þess að kaupa bleyjur á barnið sitt sökum þess að allt var lokað vegna óeirða. Hún sagði að framan af í kvöld hefði allt verið rólegt í Croydon. Nú berast hins vegar fréttir af því að 21 árs gamall karlmaður hafi verið handtekinn þar fyrir að hafa kveikt í húsgagnaverslun.
Tengdar fréttir Óeirðir breiðast út fyrir höfuðborgina Óeirðir halda enn áfram í London og hafa breiðst út um borgina. Meira en tvö hundruð manns hafa verið handteknir vegna óeirðanna og 35 lögreglumenn eru særðir. 9. ágúst 2011 06:30 Maður skotinn til bana í Lundúnum Tuttugu og sex ára gamall maður sem varð fyrir skoti í Lundúnum í gær, lést á sjúkrahúsi í dag. Þetta er fyrsta dauðsfallið frá því óeirðirnar hófust síðastliðið laugardagskvöld. 9. ágúst 2011 12:49 Íslensk kona komst ekki út til að kaupa bleyjur "Við höfum ekki farið neitt út. Ég á tveggja ára gamlan son og við höfum bara verið að læsa okkur af," segir Anna Margrét Vignisdóttir, ung íslensk kona sem starfar sem fangavörður í Lundúnum. Hún segir að nú í kvöld beri mest á óeirðum í Manchester en í gær hafi verið töluverður órói og eyðilegging í Croydon, hverfinu sem hún sjálf býr í ásamt tveggja ára gömlum syni sínum. Hún segir að það hafi verið gríðarlegir eldar í verslunargötum um 300 metrum frá íbúð hennar. 9. ágúst 2011 20:47 Mest lesið Leigubíll án verðmerkingar og veitingastaðir í óleyfi Innlent Stal 73 rauðvínsflöskum og rúllaði burt á þríhjóli Erlent Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Innlent Skötumessur Ásmundar Friðrikssonar gefa vel af sér Innlent Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ Innlent Merkúr Máni sótti brons í Ólympíukeppninni í líffræði Innlent „Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Innlent Ísraelsher stöðvaði aðra skútu með vistum Erlent Hvalfjarðargöng opin á ný Innlent Tekist á um Evrópumálin Innlent Fleiri fréttir Ísraelsher stöðvaði aðra skútu með vistum Stal 73 rauðvínsflöskum og rúllaði burt á þríhjóli Forsætisráðherra segir að átökin gætu færst nær stríði Biðst afsökunar en segist hvorki þuklari, flassari né dónakarl „Góðu fréttirnar eru að það sem hann segir skiptir engu máli“ „Tími til kominn að ljúka stríðinu á Gasa“ Lýsa yfir herlögum í Taílandi Ísraelsþing ályktar um innlimun Vesturbakkans Jeremy Corbyn leiðir nýja stjórnmálahreyfingu Þrýstingur eykst á Starmer að hann fari sömu leið og Frakkar Samninganefndir ræða fund leiðtoganna Karlmaður á fertugsaldri handtekinn fyrir sprengjuhótunina Ísraelskur ráðherra kynnir áform um þjóðernishreinsun á Gasa Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Frakkland viðurkennir Palestínu sem sjálfstætt ríki Hjálparstarf og fréttaflutningur í uppnámi vegna hungursneyðar Alls 81 barn látist úr hungri Maxwell boðuð á fund með fulltrúum Trump-stjórnarinnar Columbia greiðir tvö hundruð milljóna dala sáttagreiðslu Selenskí dregur í land Danskri sjónvarpsstöð barst sprengjuhótun Heitir bótum en stendur við lögin umdeildu Rússnesk farþegaflugvél hrapaði og á fimmta tug talinn af Níu látnir er landamæradeilur blossa upp Höfða mál vegna fullyrðinga um að forsetafrúin sé karlmaður Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Málinu lokið og Kohberger sleppur við dauðarefsingu Hvalavinurinn ekki lengur eftirlýstur Ríki mega kæra hvert annað fyrir loftslagsbreytingar Epstein mætti í brúðkaup Trumps Sjá meira
Óeirðir breiðast út fyrir höfuðborgina Óeirðir halda enn áfram í London og hafa breiðst út um borgina. Meira en tvö hundruð manns hafa verið handteknir vegna óeirðanna og 35 lögreglumenn eru særðir. 9. ágúst 2011 06:30
Maður skotinn til bana í Lundúnum Tuttugu og sex ára gamall maður sem varð fyrir skoti í Lundúnum í gær, lést á sjúkrahúsi í dag. Þetta er fyrsta dauðsfallið frá því óeirðirnar hófust síðastliðið laugardagskvöld. 9. ágúst 2011 12:49
Íslensk kona komst ekki út til að kaupa bleyjur "Við höfum ekki farið neitt út. Ég á tveggja ára gamlan son og við höfum bara verið að læsa okkur af," segir Anna Margrét Vignisdóttir, ung íslensk kona sem starfar sem fangavörður í Lundúnum. Hún segir að nú í kvöld beri mest á óeirðum í Manchester en í gær hafi verið töluverður órói og eyðilegging í Croydon, hverfinu sem hún sjálf býr í ásamt tveggja ára gömlum syni sínum. Hún segir að það hafi verið gríðarlegir eldar í verslunargötum um 300 metrum frá íbúð hennar. 9. ágúst 2011 20:47