Safna húsbúnaði fyrir fórnarlömb mansals og vændis Erla Hlynsdóttir skrifar 26. júlí 2011 14:33 Fórnarlömb mansals og vændis geta fengið stuðning í athvarfinu Mynd úr safni AFP
Vel gengur að safna húsmunum í nýtt athvarf Stígamóta fyrir fórnarlömb mansals og vændis sem stefnt er að því að opna þann 1. september. Stígamót óskuðu á dögunum eftir húsgögnum og búnaði sem öðlast gæti framhaldsslíf í athvarfinu og hafði fjöldi fólks samband í framhaldinu. „Ég hef varla undan því að svara fólki sem vill gefa okkur," segir Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, verkefnastýra athvarfsins. „Ég er búin að fá örugglega fjörutíu tölvupósta og fjölda símtala frá fólki sem er aflögufært," segir hún og er að vonum ánægð með viðbrögðin. Meðal þess sem vantaði í hið nýja athvarf voru rúm, sængur, útvarpstæki, mottur og bækur. Stígamót fá húsnæðið afhent nú um mánaðarmótin. Allan næsta mánuð verður unnið að því að mála og koma húsnæðinu í samt lag, og þá verður tekið við fyrstu skjólstæðingunum þann 1. september.„Full þörf á þessu" Lengi hafa staðið vonir til að Stígamót gæti opnað athvarf fyrir fórnarlömb mansals og vændis, og er nú loks komið að því. „Það er full þörf á þessu. Hér á landi er ekkert búsetuúrræði fyrir konur sem seldar eru mansali inn í kynlífsiðnaðinn. Konur sem eru í vændi, bæði íslenskar og erlendar, geta nýtt sér þetta úrræði til að segja skilið við þennan heim," segir Steinunn.Verjast glæpamönnum Spurð hvort ekki þurfi sérstaka öryggisgæslu við athvarf sem þetta segir Steinunn að Stígamót vinni með lögreglunni að því að tryggja öryggið. Hún vísar hins vegar til þess að í sambærilegum athvörfum á Norðurlöndunum hafi það ekki verið stórt vandamál að menn ráðist að þeim í því skyni að sækja konurnar. „Það virðist vera að þessir ósvífnu glæpamenn sleppi hendinni af konunum þegar þær eru komnar í öruggt skjól," segir hún. Þeim sem eru aflögufærir og vilja gefa til athvarfsins er bent á að hafa samband við Stígamót, hvort sem er í gegn um síma 562-6868 eða senda póst.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Fleiri fréttir Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Sjá meira