Fjárhagslegt öryggi Sólheima ekki tryggt 28. júlí 2011 18:29
Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu í morgun að íslenska ríkið hefði vanefnt skuldbindingar sínar samkvæmt þjónustusamningi með því að skerða fjárframlög til Sólheima. Guðmundur Ármann Péturson, framkvæmdastjóri Sólheima, segir reksturinn ekki enn hafa verið tryggðan. Ákveðið var að skera fjárframlög félagsmálaráðuneytisins til Sólheima, sem þjónustar fólk með þroskahömlun, niður um fjögur prósent, eða ellefu milljónir króna í fjárframlögum 2009, þrátt fyrir að þjónustusamningur, sem gerður var árið 2004, væri enn í gildi. Á sama tíma þurfti engin önnur sambærileg stofnun að þola slíkan niðurskurð. „Nú er það tekið fyrir dómi í dag og staðfest að það var rangt að mismuna fötluðum, og auðvitað er það léttir að fá það fram. En leitt að sjá þessa framamenn í íslensku þjóðfélagi verða dæmda fyrir að mismuna fötluðu fólki." sagði Guðmundur um málið, en íslenska ríkið var dæmt til að greiða Sólheimum tvær milljónir króna í málskostnað. Í dómnum er þó ekki kveðið á hvort eða hversu háa upphæð ríkið þurfi að greiða stofnuninni til viðbótar. Þó er ljóst að Sólheimar hafa orðið af ellefu milljónum á ári vegna niðurskurðarins, eða sem nemur þrjátíu og þremur milljónum. Guðmundur segir réttlætið hafa náð fram að ganga í dag en að fjárhagslegt öryggi Sólheima sé ekki tryggt. Hann telur nauðsynlegt að málið verði leyst hið snarasta.
Mest lesið Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Erlent Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Innlent Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Erlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Innlent Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Innlent Fleiri fréttir Til skoðunar að hafa mannskap við vöktun í Reynisfjöru Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Ráðstafanir í Reynisfjöru, tollar og lax á sjaldséðum slóðum Boðar fund um tolla Trumps og ESB Rauða ljósið mun blikka fyrr Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Óróinn hríðfellur og goslok líklega í aðsigi Sigurður Björnsson óperusöngvari látinn Sjá meira