Erlent

Vilhjálmi og Kate vel tekið í Kanada

Frá Parliament Hill í Ottawa í dag. Vilhjálmur og Kate eru stödd í Kanada í sinni fyrstu opinberu heimsókn sem hjón.
Frá Parliament Hill í Ottawa í dag. Vilhjálmur og Kate eru stödd í Kanada í sinni fyrstu opinberu heimsókn sem hjón. Mynd/AP
Vilhjálmur Bretaprins færði íbúum Kanada hlýjar kveðjur frá ömmu sinni, Elísabetu drottningu, þegar hann ávarpaði mannfjölda á Parliament Hill í Ottawa í dag. Elísabet er þjóðhöfðingi Kanada.

Vilhjálmur og Kate Middleton eru í Kanada í opinberi heimsókn sem jafnframt er þeirra fyrsta opinbera heimsókn eftir brúðkaup þeirra í apríl. Hjónin fengu afar góðar móttökur í Ottawa þar sem mikill fjöldi fólks hafði safnast saman.

Heimsókn þeirra til Kanada hófst í gær og stendur til 8. júlí. „Þetta er ævintýri sem við munum aldrei gleyma,“ sagði Vilhjálmur en hann og Kate ætla meðal annars að heimsækja Quebec og Alberta. Eftir veruna í Kanada fara Kate og Vilhjálmur beint í aðra opinbera heimsókn þegar þau halda til Bandaríkjanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×