Hæstiréttur hunsar beiðni Obama og heimilar aftöku 8. júlí 2011 16:22
Mexíkóskur ríkisborgari var í nótt tekinn af lífi í ríkisfangelsinu í Texas, þrátt fyrir að Barack Obama Bandaríkjaforseti hefði farið fram á að aftökunni yrði frestað. Beiðnin var tekin fyrir af Hæstarétti Bandaríkjanna og höfnuðu dómararnir beiðni forsetans. Áður hafði Rick Perry ríkisstjóri Texas einnig hafnað beiðni um náðun. Humberto Leal fluttist til Bandaríkjanna með fjölskyldu sinni þegar hann var ungabarn. Hann var sakfelldur fyrir nauðgun og morð á unglingi árið 1994 og hefur verið á dauðadeild síðan. Enginn vafi leikur á sekt Leal, en vafi leikur hinsvegar á því að handtakan hafi verið framkvæmd með löglegum hætti. Í ljósi þess að hann var með mexíkanskt ríkisfang hefðu lögreglumenn átt að greina honum frá því að hann ætti rétt á að óska eftir lögfræðiaðstoð frá mexíkönskum yfirvöldum. Það hefði mögulega komið í veg fyrir dauðadóm. Barack Obama óskaði því eftir frestun á aftökunni og það höfðu Sameinuðu þjóðirnar og ríkisstjórn Mexíkós einnig gert. Hugmynd Obama var að gefa bandaríkjaþingi færi á að klára lagasetningu sem mun gera ákæruvaldinu skylt að útvega erlendum ríkisborgurum sem ekki fá hjálp frá heimaríki sínu lögfræðiaðstoð. Hæstiréttur klofnaði þegar hann tók beiðni Obamas fyrir og vildu fjórir dómarar fallast á hana. Fimm voru hinsvegar á móti og sögðu það ekki verkefni réttarins að úrskurða um hvernig lögin gætu mögulega verið, heldur hvernig þau væru í raun. Humberto Leal var tekinn af lífi klukkustund eftir að Hæstiréttur felldi úrskurð sinn. Hans síðustu orð voru: „Viva Mexico!"
Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Erlent Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Erlent Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Innlent Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Erlent Fleiri fréttir Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Þjóðverjar yfirgefa Grænland Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Miklar sviptingar í Sýrlandi Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Nóbelsnefndin afdráttarlaus varðandi framsal verðlaunapeninga Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Hundruð hermanna í viðbragðsstöðu vegna Minnesota Myndir: Þúsundir mótmæltu á Grænlandi Segir þúsundir hafa dáið á grimmilegan máta Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Evrópuleiðtogar bregðast við: „Við látum ekki fjárkúga okkur“ Macron: „Engin ógnun eða hótun mun hafa áhrif á okkur“ Ekki útilokað að Ísland sæti Grænlandstollum Þyrfti líklega að leggja toll á allt Evrópusambandið Reyna að rjúfa nettenginu endanlega Boðar 10 prósenta toll á Norðurlönd, Breta, Frakka, Þjóðverja og fleiri Þúsundir baula á bandaríska sendiherrann Ítalir lögðu hald á skip frá Rússlandi Enn deilt um Epstein-skjölin: Dómsmálaráðuneytið segir dómara ekki mega skipa óháðan eftirlitsaðila Bein útsending: Flytja fimm þúsund tonna eldflaug á skotpall fyrir tunglskot Danmörk „pínulítið land“ með „pínulítinn her“ Sjá meira
Enn deilt um Epstein-skjölin: Dómsmálaráðuneytið segir dómara ekki mega skipa óháðan eftirlitsaðila