Erlent

Síðasta bandaríska geimskotið

Hér má sjá Atlantis taka á loft í dag, í 135. og síðasta geimskoti NASA.
Hér má sjá Atlantis taka á loft í dag, í 135. og síðasta geimskoti NASA. Mynd/AP
Síðasta geimskot bandarísku geimferjanna var nú síðdegis þegar Atlantis fór á loft frá Canaveral-höfða á Flórída. Um borð er fjögurra manna áhöfn en förinni er heitið til alþjóðlegu geimstöðvarinnar með búnað og varahluti.

Áætlað er að Atlantis lendi aftur á Flórída eftir tólf daga og þar með lýkur þrjátíu ára geimferjuáætlun Bandaríkjamanna. Alls voru fimm ferjur smíðaðar og fóru þær alls 135 geimferðir en tvær þeirra fórust og með þeim fjórtán geimfarar.

Hlé verður nú á mönnuðum geimferðum Bandaríkjanna um óákveðinn tíma og verða geimfarar þeirra næstu árin að fá far með hinum rússnesku Sojus-flaugum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×