Erlent

Allt að 127 manns létust í flugslysi

Talið er að allt að 127 manns hafi týnt lífinu þegar Boeing 727 flugvél brotlenti í Austur-Kongó í dag.

Samkvæmt tölum frá samgönguráðuneytinu í Austur-Kongó komust 51 lífs af en 127 létust. Bendir það til þess að þónokkur fórnalömb hafi verið stödd á jörðu niðri, en Boeing 727 vélin rúmar alls 149 farþega eftir því sem fram kemur á vef The Telegraph.

Vélin brotlenti aðeins um 250 metra frá Kisagani flugvellinum, þar sem hún átti að lenda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×