Bjarnargreiði við brotakonur - kynjamisrétti í refsidómum 27. júní 2011 10:01 Lokaverkefni Helgu Völu Helgadóttur ber heitið "Misskilin mannúð - rannsókn á meðferð réttarkerfisins á brotakonum" „
Fyrstu viðbrögð þeirra sem ég tala við er að þetta sé brjálað ójafnrétti gagnvart körlum," segir Helga Vala Helgadóttir, lögfræðingur, um niðurstöðu meistaraverkefnis síns að réttarkerfið tekur vægar á konum en körlum. Í Bítinu á Bylgjunni í morgun sagðist hún telja þetta vera bjarnargreiða þar sem konurnar eru jafnvel komnar í verri stöðu en karlmenn þegar þær eru loks stoppaðar af í brotastarfsemi sinni. Helga Vala segist hafa farið að velta fyrir sér hvort þarna væri um einhvers konar misskilning að ræða innan réttarkerfisins. „... að það væri verið að gera konunum greiða, innan gæsalappa, með því að gefa þeim endalaust þessa sjensa. Því að einhvers staðar hefur þú líka, hvort sem þú gerist brotlegur við lögin eða ekki, þá hefur þú gott af því að fá þetta gula spjald, eða jafnvel rauða," segir hún. Lokaverkefni Helgu Völu ber heitið „Misskilin mannúð - rannsókn á meðferð réttarkerfisins á brotakonum" en hún útskrifaðist á dögunum með meistaragráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Í Bítinu á Bylgjunni í morgun fór hún yfir niðurstöður verkefnisins og viðbrögð við þeim. Meðal þess sem þar kom fram er að vegna vægari dóma yfir konum sem teknar eru fyrir fíkniefnasmygl hefur orðið til eins konar launamisrétti meðal burðardýra í fíkniefnaheiminum. Hlusta má á viðtalið í heild sinni með því að smella á tengilinn hér að ofan. Einnig er hægt að hlusta á viðtalið hér á útvarpssíðu Vísis.
Mest lesið Lést í sprengingunni Innlent Þrír fluttir á slysadeild vegna sprengingar í Korngörðum Innlent „Heyrðust öskur þarna uppi og það er ekkert þægilegt“ Innlent Airbnb-lög samþykkt: Íbúðir eigi að nýtast sem heimili Innlent Vilja að lögreglan finni þann sem skrifaði færsluna Innlent Einn alvarlega slasaður af sextán sem voru inni í húsinu Innlent Húsið hannað til að gefa eftir í sprengingu Innlent Nú þarf ekki leyfi til að reka heilsugæslur, húðflúrstofur og fleira Innlent Mette-Marit í einkaviðtali við NRK: „Að sjálfsögðu óska ég þess að hafa aldrei hitt hann“ Erlent Orbán stendur í vegi fyrir lánveitingunni til Úkraínu Erlent Fleiri fréttir Sprengingin hjá Fóðurblöndunni og áhyggjur af stríðinu í Íran Fimm bíla árekstur á Sæbraut Gert að rannsaka tvö mál betur en gefa ekkert upp Vilja að lögreglan finni þann sem skrifaði færsluna Lést í sprengingunni Nú þarf ekki leyfi til að reka heilsugæslur, húðflúrstofur og fleira Airbnb-lög samþykkt: Íbúðir eigi að nýtast sem heimili Hafi orðið ryksprenging í tómum tanki í Fóðurblöndunni Ragna verður forstjóri Fangelsismálastofnunar „Heyrðust öskur þarna uppi og það er ekkert þægilegt“ Innviðir og íbúðir eiga að rísa samtímis í Hallahverfi Goðamót í uppnámi og útlit fyrir sama veður fram á nótt Öllu flugi dagsins aflýst Öflug sprenging í Korngörðum og vonskuveður víða Misræmi talið í framburði konu sem sakaði Þorstein um áreitni Húsið hannað til að gefa eftir í sprengingu Einn alvarlega slasaður af sextán sem voru inni í húsinu Bein útsending: Opinn fundur borgarstjóra um húsnæðismál Þrír fluttir á slysadeild vegna sprengingar í Korngörðum Eldur í rafgeymum hjá Hringrás Tvennt flutt á sjúkrahús eftir árekstur við Eyrarbakka „Finnst allt benda til þess að þetta sé að lognast út af“ Sextíu flugferðum aflýst vegna veðurs Óttast að Smalaholtsskógur verði Garðabæ að bráð Segir fyrri ríkisstjórn ekki hafa treyst sér í Fjarðarheiðargöng „Eins og við séum að fara ansi mörg ár aftur í tímann“ Aflýsa tólf flugferðum frá Ameríku Snjóflóðahætta og öfgakarlmennska áhrifavalda Dómur staðfestur yfir árásarmanni Tinnu Milljarður í holufyllingar og Einar minnti á heilahristing Patta Sjá meira