Eggert Gunnþór: Svöruðum gagnrýnisröddum Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Álaborg skrifar 18. júní 2011 22:16
Eggert Gunnþór Jónsson segir að það geti stundum verið stutt á milli hláturs og gráturs í boltanum - eins og sýndi sig þegar Ísland vann 3-1 sigur á Danmörku í kvöld en var aðeins hársbreidd frá því að komast áfram í undanúrslitin. Þess í stað er Ísland úr leik á mótinu. „Við erum fyrst og fremst svekktir að hafa ekki komist áfram en við getum verið gríðarlega stoltir af frammistöðu okkar. Við vorum svo nálægt þessu," sagði Eggert við Vísi eftir leikinn. „En við komum okkur sjálfir í þessa stöðu - það var allt undir í þessum leik. En við vorum frábærir í dag og fannst mér að við höfðum fengið nokkuð harða gagnrýni á okkur frá sumum heima. En við erum gott lið og ég held að það sé enginn í vafa um það í dag." „Við erum gríðarlega stoltir í dag enda vorum við hrikalega nálægt því að komast áfram upp úr riðlinum. Það hefði verið svakalegt afrek. Við höfðum allan tímann trú á verkefninu. Við áttum helling inni eftir fyrstu tvo leikina og við sýndum allt okkar besta í dag." „Stóri lærdómurinn er sá að þú getur ekki leyft þér að gera mistök. Og ef þú mætir ekki almennilega til leiks þá verður þér refsað. En mér fannst við vera virkilega óheppnir á móti Hvít-Rússum og ef að hann hefði farið öðruvísi væri ég núna í sigurvímu. Það er stutt á milli hláturs og gráturs í þessu."
Mest lesið Drukkin í útsendingu og baðst afsökunar Sport Þolinmæðin á þrotum: „Gerist aldrei neitt“ Sport Sagðar hafa hætt saman en mætast í úrslitaleik í kvöld Sport „Ef við viljum fá Haaland verðum við að fá Messi aftur“ Fótbolti LaMelo Ball lenti í bílslysi Körfubolti Skíðasambandinu fannst Halldór of slæm fyrirmynd Sport Sjáðu Arsenal renna á rassinn gegn Úlfunum Enski boltinn Hundur Lindsey Vonn dó daginn eftir að hún fótbrotnaði á ÓL Sport Smyglaði sér inn í Ólympíuþorpið til að styðja kærustu sína Sport „Mjög erfitt að sætta sig við þetta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Frekur Gordon minnti á Shearer og bætti markamet hans Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Fyrrum Valsarinn vann Inter, Gordon setti fernu og Madrídingar molnuðu Þjálfari danska dýnamítsins fallinn frá „Ef við viljum fá Haaland verðum við að fá Messi aftur“ Sjáðu Arsenal renna á rassinn gegn Úlfunum Fabrégas reif í treyju leikmanns en Allegri fékk rautt spjald „Mjög erfitt að sætta sig við þetta“ „Okkur var refsað fyrir það“ Atletico Madrid missti niður tveggja marka forskot í Belgíu Arsenal missti niður tveggja marka forskot í jafntefli við botnliðið Gamli Valsarinn í stuði þegar Bodö skellti Inter í Meistaradeildinni Þjálfari Stólanna segir upp störfum áður en tímabilið byrjar Elísa skoraði glæsimark hjá Fanneyju en Blikar töpuðu 11-1 samanlagt Gordon bakarameistarinn í bökun í Bakú „Af hverju ætti hann að vera að setja treyjuna yfir munninn?“ Sverrir frá Eyjum til FH Benítez valtur í sessi og gamall lærisveinn hans gæti stýrt Sverri Sparar ekki stóru orðin í garð Íslendingsins sem gæti farið alla leið í boltanum Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Dansinn hjá Vinicius, draumaleikur Doué og fimmfaldur fögnuður Valdimar fer ekki til Mexíkó Skýtur skökku við: Beindi spjótum sínum að Mourinho Segist ekki hafa kallað Vinicius apa og Benfica bakkar hann upp „Breiðablik búið að vera mígandi utan í mig í mörg ár“ Rikki G kafnaði aftur í beinni útsendingu Draumabyrjun hjá Dortmund eftir frestun PSG sneri skelfilegri stöðu í Mónakó Madrídingar sóttu sigur eftir mikil læti í Lissabon Saka verður sá launahæsti Klopp hringdi bjöllu og hitti hetjuna sína á ÓL Sagði starfi sínu lausu en fær ekki að fara Sjá meira
Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Fyrrum Valsarinn vann Inter, Gordon setti fernu og Madrídingar molnuðu