Erlent

Beðinn að hætta sölu á skordýraís

Söngtifur
Söngtifur Mynd/AP
Heilbrigðiseftirlitið í Missouri, Bandaríkjunum, hefur nú mælst til þess við eiganda ísbúðar í fylkinu að hann láti gott heita og hætti að selja viðskiptavinum sínum ís úr skordýrum.

Ísinn er gerður úr söngtifum, sem draga nafn sitt af háværu tísti karldýranna en ofgnótt er af þessu skordýri í fylkinu. Starfsmenn ísbúðarinnar söfnuðu sjálfir skordýrunum, tóku af þeim vængina, suðu þau og bættu þeim svo út í ísblöndu ásamt sykri og mjólkursúkkulaði.

Það tók fyrsta skammtinn af skordýraísnum aðeins nokkrar klukkustundir að seljast upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×