Erlent

Facebook-húðflúr auglýsingabrella

Myndbandið var auglýsingabrella á vegum hollensks gjafavörufyrirtækis.
Myndbandið var auglýsingabrella á vegum hollensks gjafavörufyrirtækis.
Svo virðist sem húðflúr hollenskrar konu, sem sýndi Facebook-prófílmyndir af 152 vinum hennar, hafi verið auglýsingabrella en myndband sem sýndi húðflúrunarferlið þaut sem eldur í sinu um internetið og hafnaði þá meðal annars á CNN fréttavefnum og fréttavef Vísis.

Húðflúrunarmeistarinn frá Rotterdam, sem í myndbandinu sést flúra prófílmyndirnar á konuna, viðurkenndi í frétt sem birtist á vefsíðu hollenska dagblaðsins Telegraaf í gærkvöldi að aðeins væri um að ræða prufuhúðflúr sem þvæst af á nokkrum dögum.

Myndbandið var gert sem auglýsingabrella á vegum hollensks fyrirtækis sem sérhæfir sig í að búa til gjafavörur úr Facebook-prófílmyndum en stofnandi fyrirtækisins segist einnig hafa viljað vekja athygli á mikilvægi samskiptavefja í heiminum í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×