Erlent

Elsti köttur Bretlands dáinn

Mischief, elsti köttur Bretlands, er dáinn þrjátíu ára að aldri.
Mischief, elsti köttur Bretlands, er dáinn þrjátíu ára að aldri.
Mischief, elsti köttur Bretlands, er dáinn þrjátíu ára að aldri.

Margir töldu hann vera elsta kött í heiminum en það hefur ekki fengið staðfest af heimsmetabók Guinness. Það er þó vitað að hann hafi verið sá elsti í Bretlandi en hann náði 136 kattaárum í aldri. Mischief dó aðeins nokkrum klukkutímum eftir veislu sem eigendur hans héldu í tilefni af þrjátíu ára afmælinu.

„Þetta er eins og að missa fjölskyldumeðlim - hann var með okkur svo lengi,“ segir eigandinn Chris Thorne sem hefur átt köttinn frá árinu 1982.

Mischief náði þó ekki að verða elsti köttur í heiminum því köttur af tegundinni Creme Puff varð þrjátíu og átta ára áður en hann lést fyrir nokkrum árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×