Innlent

Sýningastjóri setti Fallegustu bók í heimi aftur á sinn stað

Lóa Pind Aldísardóttir skrifar
Þetta er svartasti dagur í sögu tjáningarfrelsis á Íslandi, segir sýningastjóri Nýlistasafnsins, eftir að áhugaljósmyndari bættist í lið þeirra sem saka forsvarsmenn Koddu um stuld á höfundarverki. Sýningastjórinn brást skjótt við og reif ljósmyndina af kynningarplakati - auk þess flutti hann myndverkið umdeilda, Fallegasta bók í heimi, aftur á sinn stað -  í trássi við stjórn Nýló.

Vaxandi styrr stendur um sýninguna Koddu í Nýlistasafninu. Stjórn Nýlistasafnsins fjarlægði bókina Flora Islandica úr verkinu Fallegasta bók í heimi í gær - að kröfu útgefanda bókarinnar sem sagði verkið brot á sæmdarrétti höfundar. Og nú hefur áhugaljósmyndari sakað safnið um að stela þessari ljósmynd sinni, afskræma hana og svívirða í sýningarskrá og á kynningarplakati.

Einn sýningastjórana, Hannes Lárusson reif ljósmyndina af kynningarplakatinu sem ljósmyndaranum finnst rangt að sé notuð í sýningunni. Hannes er allt annað en sáttur, og segir sæmdarrétt höfunda úreltan.

Hannes hafði vart lokið við að rífa burt ljósmynd Jónasar þegar hann ákvað að fara afsíðis og sækja bókina Flora Islandica og setja hana á sinn stað - þvert á ákvörðun stjórnar Nýlistasafnsins.

Deilan um sýninguna Koddu gæti því magnast enn.


Tengdar fréttir

Saka Nýlistasafnið um árás á tjáningarfrelsið

„Þetta er svartur dagur í sögu tjáningarfrelsis á Íslandi,“ segir Hannes Lárusson, myndlistarmaður og sýningarstjóri, um ákvörðun stjórnar Nýlistasafnsins um að fjarlægja eitt verkanna af sýningunni Koddu. Tugir listamanna taka þátt í sýningunni sem var opnuð í Nýlistasafninu og Alliance-húsinu á Grandagarði um síðustu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×