Össur lagði blómsveig á minnismerki um Gandhi 26. apríl 2011 15:50 Össur er nú í opinberri heimsókn á Indlandi Mynd úr safni
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra lagði í dag blómsveig að minnismerki um Mahtma Gandhi, og heimsótti síðan heimili Gandhis þar sem hann var ráðinn af dögum, en það er nú safn í minningu sjálfstæðishetju Indverja. Össur er nú í opinberri heimsókn á Indlandi. Á fundi í Nýju-Delí fyrr í dag með utanríkisráðherra Indlands, óskaði Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra formlega eftir því að Indverjar styddu áfram framgang efnahagsáætlunar Íslands í stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Hann þakkaði jafnframt hversu vel Indverjar hefðu brugðist við óskum íslensku ríkisstjórnarinnar um liðsinni þegar langar tafir urðu á afgreiðslu áætlunarinnar á fyrri stigum Icesave-málsins.. Ráðherrarnir fögnuðu umtalsverðri aukningu í viðskiptum milli ríkjanna og ræddu leiðir til að efla þau enn frekar, m.a. með því að flýta gerð fríverslunarsamnings milli Indlands og EFTA-ríkjanna. Utanríkisráðherra Indlands óskaði eftir frekara samstarfi við Íslendinga á sviði sjávarútvegs og nefndi sérstaklega uppbyggingu fiskimjölsverksmiðja á sjávarútvegssvæðum Indlands og tækni varðandi pökkun og merkingu fiskafurða. Ráðherrarnir bundust fastmælum um að næsta skrefið í frekari samvinnu á sviði sjávarútvegs yrði að indversk stjórnvöld myndu senda indverska sérfræðinga til náms við sjávarútvegsháskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Þetta kemur fram á vef utanríkisráðuneytisins
Mest lesið Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Fleiri fréttir Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Sjá meira