Peter Stein hlýtur evrópsku leiklistarverðlaunin Símon Örn Birgisson skrifar 18. apríl 2011 12:15 Peter Stein. Mynd: EPA
Þýski leikstjórinn Peter Stein fékk evrópsku leiklistarverðlaunin afhent í gær við hátíðlega athöfn. Verðlaunin fær hann fyrir framlag sitt til evrópskrar leiklistar. Íslenski leikhópurinn Vesturport deildi aukaverðlaunum hátíðarinnar með fimm öðrum leikhópum. Evrópsku leiklistarverðlaunin voru afhent í Sánkti Pétursborg í gær. Peter Stein, sem hlýtur aðalverðlaun hátíðarinnar, er einn af stofnendum Schaubühne leikhússins á sjöunda áratugnum í Berlin og margar af sýningum hans eru álitnar perlur þýskrar leikhússögu - til dæmis uppsetning hans á Faust árið 2000 sem tók yfir tuttugu tíma í flutningi. Þessi leiklistarverðlaunin eru ein þau mikilvægustu í Evrópu. Meðal fyrri vinningshafa eru Pina Bausch, Harold Pinter, Lev Dodin og fleiri. Auk heiðursins sem fylgir verðlaununum fær Peter Stein 60 þúsund evrur í sinn hlut eða um tíu milljónir króna.Vesturport fékk aukaverðlaun Aukaverðlaun hátíðarinnar, sem heita Nýr veruleiki í sviðslistum, var komið á fót fyrir tólf árum og er ætlað að verðlauna þá sem hafa náð árangri utan hinna stóru stofnana leikhússins. Í ár deila sex leikhópar þeim verðlaunum með sér. Hóparnir eru frá Slóvakíu, Bretlandi, Rússlandi, Finnlandi, Portúgal og Íslandi þessi verðlaun og skipta leikhóparnir þrjátíu þúsund evrum með sér. Vesturport fær því 5000 evrur í sinn hlut eða um 800 þúsund krónur. Einnig eru veitt heiðursverðlaun dómnefndar evrópsku leiklistarverðlaunanna sem rússneski leikstjórinn Jurij Petrovic Ljubimov hlýtur í þetta skiptið fyrir starf sitt með Taganka leikhópnum í Rússlandi. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, óskaði Vesturporti í gær til hamingju með verðlaunin. Þó Vesturport hafi ekki unnið aðalverðlaun hátíðarinnar er vera Vesturports á hátíðinni og sú viðurkenning sem hópurinn fær í sinn hlut mikill heiður en sýningarnar Hamskiptin og Faust, í uppsetningu Vesturports eru báðar sýndar á hátíðinni. Umfjöllun gagnrýnenda um hátíðina má meðal annars lesa hér.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Sjá meira