Börnin gráta björninn Knút SB skrifar 20. mars 2011 14:36 Blóm hafa verið lögð að staðnum þar sem Knútur átti heima. Mynd/ AFP.
Sorg ríkir í Þýskalandi vegna dauða ísbjarnarins Knúts sem naut ótrúlegra vinsælda meðal barna og fullorðinna þar í landi. Banamein Knúts hefur enn ekki verið staðfest en mörg hundruð gestir í dýragarðinum fylgdust með síðustu andartökunum í lífi hans. Hann var stjarna dýragarðsins í Berlín og átti stað í hjarta okkar allra, segir Klaus Wowereit, borgarstjóri í Berlín. Meira en sex hundruð manns fylgdust með dauðastríði Knúts í gær. Knútur hafði legið í sólbaði og bjó sig undir að stinga sér til sunds. Vitni lýsa því að hann hafi fengið einhvers konar flogakast, dottið í vatnið þar sem hann hafi marað í hálfu kafi og drepist.Knútur fannst dauður í sundlauginni sinni.Margir Þjóðverjar syrgja Knút, sérstaklega börn. Dæmi eru um að foreldrar hafi þurft að búa til sögur til að sefa sorg barnanna - Knútur sé bara farinn í frí eða að Knútí, eins og hann var oft kallaður, sé einfaldlega sofandi. Með tár í augum spurðu þýsk börn í sjónvarpsfréttum þar ytra í gærkvöldi - er Knútur á ísbjarnarhimnum? Enn á eftir að rannsaka hræ bjarnarins en yfirmenn dýragarðsins í Berlín segja ljóst að hann hafi ekki dáið af eðlilegum orsökum. Dýraverndunarsamtök, sem barist hafa gegn veru Knúts í Berlín, hafa bent á að hann hafi verið undir miklu álagi, bæði vegna vinsældanna með gesta garðsins en líka vegna þess að öðrum björnum lynti ekki við hann. Í þýskum fjölmiðlum í dag er bent á að stuttu eftir að Knútur sleit barnsskónum árið 2008 hafi dýralæknirinn Thomas Dörflein látist af völdum hjartaáfalls, aðeins 44 ára gamall. Dörflein var nánasti vinur Knúts - margir litu á hann sem eins konar föður litla húnsins. Knútur var einn eftir og spyr þýska götublaðið Bild í dag hvort einmanaleikinn hafi kannski verið banamein bjarnarins.
Mest lesið Magnús Eiríksson borinn til grafar Innlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Innlent Íslendingur handtekinn á EM Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Innlent Fleiri fréttir Telur Trump gera mistök Einn látinn eftir annað lestarslys á Spáni Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Fæðingum fækkaði um 1,62 milljónir milli ára Varaði við lögmáli frumskógarins og hæddist að Trump Beiting hervalds ólíkleg en ekki útilokuð Ráðherra Trumps segir Evrópu móðursjúka Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Fyrsta árinu af fjórum lokið Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Býður Pútín sæti í „friðarráði“ fyrir Gasaströndina Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Þjóðverjar yfirgefa Grænland Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Miklar sviptingar í Sýrlandi Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Nóbelsnefndin afdráttarlaus varðandi framsal verðlaunapeninga Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Sjá meira