Jóhanna: Engum heilvita manni dytti það í hug 24. mars 2011 13:43 „
Dettur einhverjum heilvita manni í hug, að þrjár konur, ég sem forsætisráðherra, ráðuneytisstjórinn í forsætisráðuneytinu og mannauðsráðgjafinn, sem líka er kona, hafi eina einustu mínútu gert sér í hugarlund að þær væru að brjóta jafnréttislög með þessari skipun í embætti?" spurði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á Alþingi fyrir stundu. Þar flutti hún skýrslu um úrskurð Kærunefndar jafnréttismála sem var á þá leið að Jóhanna hafi brotið gegn jafnréttislögum. Jóhanna vísaði til þess hversu mjög hún hefur barist fyrir jafnrétti kynjanna í gegn um tíðina og því fari víðs fjarri að henni dytti í hug að brjóta vísvitandi jafnréttislög. Jóhanna segir mikilvægt að taka úrskurðinn alvarlega og fara vel yfir hann til að unnt sé að beita réttum vinnubrögðum í framtíðinni. Í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun sagðist Jóhanna ekki sjá ástæðu til að segja af sér vegna málsins þar sem faglega hefði verið staðið að ráðningunni. Þar tók hún fram að hún hefði hins vegar íhugað afsögn ef hún hefði gerst sek um að ganga framhjá faglegu mati og skipað pólitískt í stöðuna, og rifjaði í því sambandi upp skipan Árna Mathiesen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, sem skipaði Þorstein Davíðsson sem héraðsdómara þrátt fyrir að hann væri langt því frá að vera metinn hæfastur í stöðuna.
Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Fleiri fréttir Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Sjá meira