Dæmd til þess að greiða fyrir fermingaveislu dóttur sinnar 24. mars 2011 15:11 Héraðsdómur Reykjaness.
Móðir var dæmd í Héraðsdómi Reykjaness í dag til þess að greiða H 57 ehf, Flughótel í Reykjanesbæ, 340 þúsund krónur fyrir fermingaveislu dóttur sinnar sem þar var haldin. Upprunalegi reikningurinn hljóðaði upp á 588 þúsund krónur. Konan mótmælti upphæðinni en áætlaður fjöldi gesta voru 90 fullorðnir og 50 börn. Aftur á móti rukkaði hótelið konuna fyrir 145 fullorðna á meðan hún vildi meina að aðeins hafi verið borinn fram matur fyrir 112 gesti alls. Konan kvaðst hafa haldið því fram að 380.000 krónur væru hámark þess sem greiða skyldi fyrir veisluna, en í ljósi þess hvernig framkvæmd hennar hafi verið krafðist hún afsláttar af umsömdu verði og bauðst til að greiða 300.000 krónur. Samið var um að fullorðnu gestirnir fengju lambakjöt í aðalrétt með ábót. Í eftirrétt skyldi vera kaffi og kökur. Börn áttu að fá kjúklingakjöt og greiða skyldi 1.600 krónur fyrir hvert barn, 5-11 ára, en ekkert fyrir börn 4 ára og yngri. Þá hafi verið samið um að veita skyldi gosdrykki með matnum og skyldi greiða 750 krónur fyrir hverja könnu. Til staðfestingar á samkomulagi þessu greiddi konan og faðir barnsins samtals hundrað þúsund krónur. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu, þrátt fyrir að móðirinn lagði fram gestabók, sem sýndi fram á að 77 fullorðnir gestir mættu, að hún skyldi greiða fyrir 145 fullorðna. Aftur á móti var verðið fyrir gosdrykkina lækkað. Hótelið vildi meina að veittar hefðu verið 126 könnur af gosi á 750 krónur fyrir hverja könnu eða samtals 94.500 krónur. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að eðlilegt væri að greiða 33.750 krónur fyrir veitta gosdrykki og er þá við það miðað að hver gestur hafi neytt rúmlega 0,7 lítra af gosi, en ekki 1,25 lítra. Móðir fermingabarnsins vildi einnig meina að þjónusta hótelsins hefði verið verulega ábótavant en undir það tók héraðsdómur ekki. Niðurstaðan var því sú að konan skyldi í heild greiða 440 þúsund krónur fyrir veisluna. Þá dragast frá þær hundrað þúsund krónur frá sem hún hafði þegar greitt fyrir þjónustuna.
Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Fleiri fréttir Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Sjá meira