Spyr hvort einhver þurfi ekki að ákveða hvort landsbyggðin lifi 28. mars 2011 18:57
Oddviti Vopnafjarðarhrepps spyr hvort einhver þurfi ekki að fara að taka ákvörðun um það hvort landsbyggðin eigi að lifa eða ekki. Íbúum Vopnafjarðar hefur fækkað um nærri þrjátíu prósent á rúmum tuttugu árum. Í Vopnafjarðarhreppi bjuggu 940 manns fyrir 23 árum en ef héraðið hefði haldið sínum hlut ættu yfir 1.200 manns að búa þar. Þess í stað er íbúafjöldinn kominn niður í 670 manns. Oddvitinn, Þórunn Egilsdóttir, segir þetta gerast þrátt fyrir tiltölulega gott atvinnuástand og nefnir sem dæmi að HP Grandi hafi verið að byggja upp mikla vinnslu. Þá sé rekið sláturhús á Vopnafirði, eitt af fáum á landsbyggðinni. Þórunn segir eitthvað bogið við það að íbúum skuli samt stöðugt fækka. Hún spyr hver skilaboðin séu og hvernig við ætlum að hafa landsbyggðina. "Hvaðan erum við að fá tekjurnar? Hvernig ætlum við að hafa samfélagið okkar? Þarf ekki bara einhver að fara að taka ákvörðun um það hvort landsbyggðin á að lifa eða ekki?" spyr oddvitinn. Spurð hversvegna fólk flytji ekki til staðar eins og Vopnafjarðar og hversvegna fólki fækki áfram svarar Þórunn að fólk átti sig ekki á því hvað það sé gott að búa á stað eins og Vopnafirði. Þar sé mjög fjölbreytt mannlíf og skemmtilegt og mikið um að vera. Menningin sé góð, mikil félagastarfsemi og hellingur um að vera. Sjálf segist hún vera brottfluttur Reykvíkingur: "Já, ég ætlaði að vera hér einn vetur fyrir aldarfjórðungi síðan. Ég er hérna enn."
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Sjá meira