Facebook síðu um einelti í Hveragerði lokað 11. mars 2011 11:14
Facebook síðu sem helguð var einelti í grunnskóla Hveragerðis hefur verið lokað. Aðstandendur síðunnar segjast hafa tekið ákvörðunina eftir mikla íhugun en þeir segjast hafa orðið fyrir áreiti með símhringingum og póstsendingum þar sem þrýst var á þá að loka síðunni. Þeir segjast hafa orðið fyrir beinum og óbeinum hótunum frá hendi bæjarbúa. „Sorgleg staðreynd er það að svo virðist sem bæjarbúar sjái ekki sóma sinn í að horfa á það alvarlega ástand sem yfirvöld skólans hafa komið sér í með ráðaleysi um mál nokkura einstaklinga sem enn eru skráðir nemendur í skólanum,“ segir í yfirlýsingu frá Davíð Michelsen og Róberti Guðmundssyni aðstandendum síðunnar. „Þekki ég af eigin raun hvernin tekið var á málunum á minni skólagöngu og get ég ekki trúað því að yfirstjórn skólans snúi skyndilega við blaðinu og geri allt í sem í þeirra valdi stendur. Til að mynda eru meintir gerendur enn á sínum stað. Svo virðist sem þagga eigi þetta niður enn eina ferðina og láta sem ekkert sé.“ Davíð og Róbert segja að fórnarlömb eineltis beri oftast ekki utan á sér þau djúpu sár sem einelti setji á sálina „og er þá í raun ekki hægt að ætlast til af skólastarfsliði að það sjái alltaf hvað er að gerast enda er andlegt ofbeldi vel falið.“ Hann segir að þess vegna þurfi að stórefla eineltisfræðslu í öllum skólum og fylgja eftir hverju máli sem kemur inná borð til handhafa skólavalds því nú þegar er skaðinn mikill á marga einstaklinga. „Hvetja þarf alla sem telja sig verða fyrir ofbeldi í grunnskólum að stíga fram og segja frá, öðruvísi er ekki hægt að taka á vandanum. En munum að margir þolendur segja oftast ekki frá því ofbeldi sem þeir verða fyrir, sem gerir það svo brýnt að við séum vakandi fyrir því sem er að gerast í kringum okkur.“ „Foreldrar, fræðum börnin okkar vel og oft svo ekki þurfi að senda brotnar sálir útí lífið. Við berum öll ábyrgð á velferða barna okkar,“ segir að lokum.Facebook síða um einelti á Íslandi almennt er þó enn opin.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kourani farinn úr landi Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Sjá meira