Sakaður um morð Jón Hákon Halldórsson skrifar 11. mars 2011 16:23
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað íslenska ríkið af kröfu manns sem stefndi ríkinu fyrir ólögmæta frelsissviptingu og gæsluvarðhald sem hann sætti vegna morðs sem hann var á tímabili grunaður um að hafa framið. Málavextir eru þeir að í september 2008 fannst karlmaður látinn í íbúð sinni að Skúlagötu. Rannsókn lögreglu leiddi í ljós að hinn grunaði hafði, ásamt öðrum manni setið að drykkju með manninum sem lést í íbúð hans að Skúlagötu í Reykjavík frá því tveimur dögum áður en hann fannst látinn. Upphaflega var málið rannsakað sem manndráp af ásetningi en síðar var það rannsakað sem stórfelld líkamsárás sem leiddi til dauða. Við rannsókn málsins fann lögreglan blóðuga peysu sem karlmaðurinn var í skömmu eftir að félagi hans lést. Við DNA rannsókn kom í ljós að í peysunni var bæði blóð af hinum látna og þeim sem grunaður var um morðið. Maðurinn var því handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Engu að síður var send út tilkynning, í lok mars árið 2009, um að málið væri fellt niður vegna þess að ekki þóttu líkur til þess að sakfellt yrði í málinu. Maðurinn fór því fram á bætur vegna handtökunnar og frelsissviptingarinnar. Íslenska ríkið hafnaði kröfunni á þeirri forsendu að hún væri fyrnd þegar hún var fram komin. Slíkar kröfur fyrndust á sex mánuðum. Maðurinn sem grunaður var um morðið hélt því hins vegar fram að sér hafi aldrei borist tilkynning um að málið hafi verið látið niður falla. Það hafi ekki verið fyrr en í lok janúar 2010 að hann gerði sér grein fyrir því. Héraðsdómi þótti að sýnt hefði verið fram á að verjandi mannsins hefði fengið tilkynningu um að málið hefði verið látið niður falla og sýknaði því íslenska ríkið af bótakröfu. Enn þann dag í dag hefur enginn verið dæmdur fyrir morðið á Skúlagötunni.
Mest lesið „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Vegfarendur hvattir til að fylgjast með viðvörunum Veður Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „One love“ til allra í kommentakerfinu Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Bílvelta austan við Hvalnes Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Fleiri fréttir „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Sjá meira